Við teflum öll við páfann, konur líka, en athöfnin sjálf virðist í hugum flestra vera mikið feimnismál. Það er nú svo sem skiljanlegt en ástæða fyrir því að við lokum að okkur þegar taðfæðing er í gangi. Það hefur oft borið á góma að konur kúki ekki en það er ekki rétt, þær kúka líka.

Þær eru í flestum tilvikum ekki eins grófir kúkarar og karlar? Sumar hverjar kúka slaufukúkum og aðrar fjölmörgum agnarsmáum spörðum sbr. dvergakast. Sumar eru samt groddaralegir hellisbúar og þær stífla klósett og mölva setu með þrusulort.

En af hverju er ég að velta mér upp úr þessu? Það er jú vegna þess að mér finnst allt of margir líta á skitu sem einhverja kvöð. Það vill oft gleymast að klósettferð með gat nr.2 í huga er eitthvað sem krefst mikillar tækni og getur orðið hin mesta náðar-unaðar-stund. Þetta er viss griðarstaður þar sem þú ert ein(n) með ristlinum og samvinna ykkar beggja kallar á sameiginlegan skilning. Ristill vill losa úrgang og þú vilt njóta hægðanna. Það er ástæða fyrir því að karlmenn njóta þeirra betur en hún vegna G-blettsins.

1. Forleikur:
Að kúka er eins og að stunda kynlíf. Þeir sem gleyma forleik eru slakir bólfélagar. Þeir sem gleyma að leika sér að kíknum til að forma ákjósanlega lögun í ristli eru slakir kúkarar. Þetta vita fáir. Fyrsta stig skitu er þegar ristill gerir vart við sig. Þá vilja margir hlaupa til handa og fóta og afgreiða málið strax. Það er rant. Þú átt að halda honum í þér sem gerir það að verkum að hann þjappast. Eftir 1-2 tíma byrjar hann aftur og þá leikur þú sama leik - kúkahald - og leikur þér líka aðeins að honum (rennir honum upp og niður í ristli.) Eftir 30 mín, herjar stykkið aftur á þig og þá lætur þú undan. Með þessari aðferð myndast þéttur og “solid” dropalaga þrususkítur sem glymur í skál og yfirgnæfir kirkjuklukkur.

2. Klósettferðin:
Ef rétt er staðið að málunum (sbr. 1. grein) skal fyrir kurteisissakir tjá fólki um fyriráætlanir sínar, þ.e. ef einhver þarf að losa úr gati nr.1 skal honum/henni hleypt from fyrir röðina. Er inn á WC er komið skal tryggja að klósettpappírsforði sé ekki að skornum skammti geymdur. Næsta mál er að athuga hvernig lögun klósett er. Þetta er spurning um hvernig skuli sitja svo unnt sér að hitta beint í mark, þ.e. vatnið (súrt að vera með skakkt rassgat). Það leiðinlegasta er að þurfa að hreinsa eftir sig með klósettbursta. Eftir það fer í hönd ferli pjattpullunnar. Þá er klósettpappír komið fyrir á botni skálarinnar til að koma í veg fyrir gusu í taðgat. Ekki þykir gott að fá kalt vatn eða eigið þvag í hringvöðva. Aðgerð þessi kallast að koma fyrir lendingarpalli. Næst tyllir þú þér á setuna. Ef þú ert á pupul-klósetti þá mæli ég með því að hylja setu með pappír. Þá færðu ekki kám á rass og finnur ekki fyrir kulda setunnar.

Nú kemur að aðalmálinu. Best er að láta þvag renna fyrst og ná svo skitu út meðan þvag rennur. Ekki þrýsta of fast því mundu: Skíturinn hefur verið í þjappingi í ristli í 2-4 klst. Ef maður reynir þrykkju þá kemur sársauki í tað þegar hann þrykkist út. Ekki gott. Best er að áætla helming út og klippa þar á hann. Ef þú klikkar á því að klippa hann þá geturðu lent í því að þurfa að pota í hann með priki svo hann nái beygjunni. Meiri unaður fæst út úr því að klippa - þá er eins og um 2 losanir hafi verið að ræða.

2.1 Sími á setti - vinur deilir gleðinni:
Ekki er óalgeengt að súper-taðlosarar taki með sér farsíma á sett til að deila gleðinni með fjarverandi félaga. Þá er sniðugt að láta símann síga niður í skálina svo viðkomandi heyri þegar manninn dettur, þ.e. splashið. Þá mæli ég ekki með þvaglosun og alls ekki setja pappír í botn skálar.

3. Skeining og frágangur:
Eftir tæmingu ristils mæli ég með góðri skeiningu. Þá vil ég benda þeim á sem kuðla pappírinn og búa til kúlu að hætta því. Það er ógeðslegt og mun meiri hætta að fá á sig tað. Yfirstéttarbrotið virkar best (sex smáblöðungur brotinn saman tvisvar sinnum). Það er yfirleitt nóg að búa til tvö brot af honum. Sniðugt er að gera þetta fyrir taðlosun því illu er best aflokið. Eftir skeiningu skal sturta niður. Leyfið lort og meðfylgjandi pappír að fara niður áður en setuhyljan er látin gossa. Ekki gleyma að skola hendur.

ScOpE O&O.