Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Catium
Catium Notandi síðan fyrir 19 árum, 5 mánuðum 35 ára kvenmaður
196 stig
Áhugamál: Harry Potter, Tolkien
Heimsyfirráð, súkkulaði og Harry Potter.

Buffy á Stöð 2 (2 álit)

í Sci-Fi fyrir 13 árum, 12 mánuðum
Smá pæling. Er það ekki rétt hjá mér að Stöð 2 hætti að sýna Buffy the Vampire Slayer eftir seríu 5. Þeir sýndu aldrei seríu 6 og 7 er það nokkuð? Og sería 6 og 7 voru aldrei sýndar á annarri íslenskri stöð hér á landi er það? Ég og vinkona mín erum nefnilega að rífast um þetta hún getur svarið að hún hafi séð seríur 6 og 7 í sjónvarpinu hér á Íslandi á íslenskri stöð. Bara smá pæling megið endilega gefa mér svar.

Spunakeppnin. (4 álit)

í Harry Potter fyrir 14 árum, 4 mánuðum
Tók enginn þátt í spunakeppninni? Ég ætlaði að gera það en svo var bara allt í einu komin 1.desember áður en ég vissi af. Tíminn líður aðeins of hratt þegar maður er í háskólanum. Held samt að ég geri sögu úr þessu í jólafríinu ef ég hef tíma.

Daniel Radcliffe ætlar að verða fyrsti samkynhneigði Bond (3 álit)

í Harry Potter fyrir 16 árum, 7 mánuðum
Daniel Radcliffe, betur þekktur sem galdrastrákurinn Harry Potter, segist vel geta hugsað sér að taka að sér hlutverk njósnara hennar hátignar, James Bond, einn góðan veðurdag. Með örlítið öðruvísi sniði en við höfum þekkt hann hingað til. Aðspurður hvaða dömu hann sæi fyrir sér sem Bond-stúlkuna, svaraði hann: „Ég verð að segja Rupert. Ég ætla að verða fyrsti samkynhneigði James Bond,“ og átti þar við samleikara sinn í Harry Potter, Rupert Grint, sem leikur Ron Weasley. Þetta er inn á...

The End. Spoiler, spoiler, mega spoiler (You've been warned) (22 álit)

í Harry Potter fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Jæja þá er þessu lokið. Seinasta Harry Potter bókin komin út og ég er búin með hana. Kláraði hana nákvæmlega 28 mínútur yfir miðnætti í nótt (þann 23.júlí). Var rúmlega 2 sólarhringa með hana og samt var ég að vinna og keyra heim til mín frá Akureyri og svona en það er alveg 4 klukkustunda akstur, svo að ég sat ekki við og las allan tímann. Já hvað get ég sagt. Mér fannst bókin rosalega góð og hef nákvæmlega ekkert út á hana að segja. Sumir voru að bitchast með það að sumt hefði verið of...

Austfirðingar (10 álit)

í Harry Potter fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Ef það eru einhverjir Austfirðingar hér á HP huga áhugamálinu sem vilja fara á miðnæturopnunina á Akureyri en vita ekki hvernig þeir ætla að komast norður, þá fer ég frá Egilsstöðum um 4 leytið á föstudaginn norður. Þannig að ef einhverjum vantar far og mömmu þeirra og pabba finnst þau ekki nógu gömul til að fara þetta ein, þá býð ég mig fram sem far og ábyrgðarmanneskja á þeim sem eru undir 18 ára. Þið hafið bara samband við mig í gegnum skilaboðin hér og ég segi ykkur þá hvar þið getið...

Pæling (18 álit)

í Harry Potter fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Verður miðnæturopnuninn ekki á miðnætti þann 20 þegar 21 tekur við að þeim 20 s.s. á föstudagsnóttina aðfaranótt laugardagsins. Eða er það aðfaranótt sunnudagsins s.s. þegar 22 tekur við að 21. Hvort er það??? Vill hafa það á hreinu, því að ég ætla á Akureyri og í röðina þar og hverjir ætla á Akureyri og hvar á Akureyri verður miðnæturopnuninn.. Bara þeir sem vita það mega svara þessu vinsamlegast.

30.júní. 2007 10 ár síðan fyrsta bókin kom út. (17 álit)

í Harry Potter fyrir 16 árum, 10 mánuðum
Las það í Fréttablaðinu í gær að 30.júní árið 1997 kom fyrsta Harry Potter bókin út, Harry Potter og Viskusteininn. Finnst það mjög sérstakt að allt þetta ævintýri sem þessi bókarflokkur er búin að vera skuli standa yfir í 10. ár og 21 dag. En þann 21. næstkomandi kemur seinasta bókin út og þá eru liðin rétt yfir 10 ár frá fyrstu bókinni, heill áratugur. Mjög spes. Hvað finnst ykkur???

Kveðjuorð til Harry Potters Hugara áhugamálsins. (6 álit)

í Harry Potter fyrir 16 árum, 10 mánuðum
Las kveðjuorð Köttu hérna í grein sem heitir Lokabaráttan í töfraheiminum og byrjaði að skrifa þetta sem svar við henni en ákvað að lokum að skrifa eitthvað í svipuðum dúr og birta sem grein. Fannst þetta sniðug hugmynd hjá henni og hvet fleiri til að gera þetta líka. Eftir 21 dag verður þetta búið, seinsasta bókin komin út og ævintýrið á enda. Ég hef ekki hugmynd um hvað ég á að gera með sjálfan mig þegar ég verð búin með bókina. Ég á örugglega eftir að gráta úr mér augun og læsa mig inni í...

Systkina kenningin (28 álit)

í Harry Potter fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Hérna er linkur að kenningu sem heitir á ensku The Sibling Theory, eða Systkina Kenningin. Það er víst slatti af Harry Potter aðdáðendum sem halda því fram að Harry og Hermione séu systkini og á þessum linki er hægt að lesa allt um þessa kenningu og rök fyrir því af hverju fólk heldur þessu fram. Ég er sjálf bara hálfnuð að lesa hana en er orðin nokkuð sannfærð, rökin eru mjög góð og margt sem verið er að segja makes sense. En allavega þetta er alveg svakaleg kenning og hefur fengið mig til...

100 dagar (61 álit)

í Harry Potter fyrir 17 árum
Ok í dag eru 100 dagar í stóru stundina… Harry Potter and the Deathly Hallows. Ég veit ekki með ykkur en ég er orðin mjög spennt. Er að hugsa um að hitta nokkra hugara á Akureyri fyrir utan Bókaval það er bara spurning hvort að þau vilja hitta mig???

Útgáfa bókarinnar (7 álit)

í Harry Potter fyrir 17 árum, 2 mánuðum
Jæja þá er drottning vor J.K. Rowling búin að segja hvenær útgáfudagur nýjustu bókarinnar verður. Á heimasíðunni hennar þann 1.febrúar birtist þessi frétt: “Harry Potter and the Deathly Hallows will be published on Saturday 21st July 2007 at 00:01 BST in the UK and at 00:01 in the USA. It will also be released at 00:01 BST on Saturday 21st July in other English speaking countries around the world.” Það sem hún er að segja þarna fyrir þá sem eru ekki sleipir í enskunni er hún að segja að...

DVD (5 álit)

í Harry Potter fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Bara örstutt spurning. Hvenær kemur The Goblet of Fire út á DVD hér á Íslandi? Hún er víst komin á DVD úti ég sá það á einhverri mynd. En hvenær kemur hún út hér, veit einhver það???

1. nóvember kominn og farinn (5 álit)

í Harry Potter fyrir 18 árum, 5 mánuðum
Þetta snýst um verðandi spunann minn. Ég veit að ég var búin að lofa fyrsta kaflanum í kringum 1.nóv en því miður er brjálað að gera hjá mér. Það er skólinn og heimavinnan og skólinn og heimavinnan. Og þegar ég er ekki að sinna skólanum eða heimavinnunni eru það vinirnir og ég hef bara ekki þrek á kvöldin í það að skrifa ég bara leggst á koddann og sofna. En ég er samt búin að skrifa fyrsta kaflann og er að verða búin að skrifa úrdrátt sem ég ætla að senda inn annaðhvort á Föstudaginn eða um...

Ákvörðun tekin. (5 álit)

í Harry Potter fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Jæja ákvörðun tekin. Ég er búin að taka ákvörðun varðandi spunann minn sem er búin að vera myndast í hausnum á mér. Ég ætla að byrja að skrifa hann. Fyrst ætla ég að skrifa niður það sem ég er komin með og fullmóta það. Svo ætla ég að gera úrdrátt og senda hann til stjórnendanna til samþykktar (eða ekki). Síðan ætla ég að senda inn fyrsta kaflan ef stjórnendur samþykkja úrdráttinn. Þetta gætið tekið dálítin tíma, það fer eftir ýmsu t.d. því hvað ég verð lengi að skrifa og hvað stjórnendurnir...

Hjálp með verðandi spuna (9 álit)

í Harry Potter fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Mér vantar hjálp með verðandi spunann minn. Sko málið er það að það er búið að vera, núna í meira en hálft ár, spuni að myndast í hausnum á mér. En ég er með vægast sagt stórfurðulegt ímyndunarafl og það (ímyndunaraflið mitt) blandað saman við það hvílíka ímyndunarafl sem liggur að baki Harry Potter sögunum myndar vægast sagt stórfurðulegan spuna. Ég er ekkert byrjuð að skrifa ennþá allur spuninn er ennþá hérna uppi (bendir á hausinn á mér) og ég er pínku hrædd við að byrja að skrifa hann....

Næsti Galdramálaráðherra. (6 álit)

í Harry Potter fyrir 19 árum
Næsti Galdramálaráðherra. Ron leit á töfluna þungur á brún en svo birti yfir honum. “Þú gafst mér fríkvöld einu sinni í viku!” “Það er fyrir Quidditchæfingu,” sagði Hermione. Brosið hvarf af vörum Rons. “Til hvers?” sagði hann dauflega. “Það eru jafn miklar líkur á því að við vinnum Quidditchbikarinn þetta árið og að pabbi verði galdramálaráðherra”. Þetta stendur á bls 560 í Harry Potter og Fönixreglan og ég tel að þetta sé vísbending um hver verði næsti galdramálaráðherra. Eins og þeir vita...

Mér vantar hjálp. (7 álit)

í Harry Potter fyrir 19 árum
Mig vantar hjálp Hvor í bókunum er elstur af Weasley systkinunum Bill eða Charley? Ég vil fá alveg 100% rétt svar vegna þess að þetta er fyrir grein sem ég ætla að senda inn á H.P. áhugamálið. Vill plís einhver svara plíís. Því ég held að það vilji allir fá nýja grein inn. Með fyrirfram þökk. Kveðja Catium

Staðreyndir SPOILER. (3 álit)

í Harry Potter fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Staðreyndir. Eftirfarandi eru staðreyndir um sjöttu bókina komnar beint frá J.K.Rowling og var safnað saman úr óteljandi samtölum af netinu og af heimasíðu Rowlings. Allt hér fyrir neðan hefur verið staðfest af Rowling. Ég fann þessar staðreyndir á síðu sem kallast www.mugglenet.com og þýddi þær yfir á íslensku svo auðveldara yrði fyrir ykkur lesendur góðir að skilja þær. Ég vil taka það fram að þessar staðreyndir eru spoilerar. Almennar upplýsingar. Útgáfudagur: 16.júli 2005. Lengd:...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok