Ef það eru einhverjir Austfirðingar hér á HP huga áhugamálinu sem vilja fara á miðnæturopnunina á Akureyri en vita ekki hvernig þeir ætla að komast norður, þá fer ég frá Egilsstöðum um 4 leytið á föstudaginn norður.
Þannig að ef einhverjum vantar far og mömmu þeirra og pabba finnst þau ekki nógu gömul til að fara þetta ein, þá býð ég mig fram sem far og ábyrgðarmanneskja á þeim sem eru undir 18 ára.
Þið hafið bara samband við mig í gegnum skilaboðin hér og ég segi ykkur þá hvar þið getið hitt mig. Þið þurfið þá bara að koma ykkur í Egilsstaði, fyrir 4 á föstudaginn.
Sé ykkur vonandi þá.
Heimsyfirráð, súkkulaði og Harry Potter.