Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Turninn (0 álit)

í Dulspeki fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Talið er að þetta spil eigi uppruna sinn í tilbeiðslu Díoníusar sem var tengdur Mítradýrkun. Spilið sýnir fallandi turn sem er lostinn af eldingu. Stundum sjást tveir menn falla úr turninum og umhverfis turninn rignir annaðhvort steinum úr turninum eða brot úr þéttinu múrverksins (sumir segja að það sé hebresk yod, sem er tíundi og minnsti stafur hebreska stafrófsins), sem er tákn andlegs efnis. ÞEGAR SPILIÐ SNÝR RÉTT Óvænt áfall. Frelsun. Lausn. Breyting sem leiðir til velferðar. Uppræting...

Djöfullinn (1 álit)

í Dulspeki fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Upprunalega má rekja þetta spil til guðsins Satúrnus en einnig vill fólk tengja þetta spil til Mítra dýrkunar. Í flestum miðaldarspilum er Satan uppi á stalli en tvær verur hlekkjaðar sinn hvorum megin við hann. Djöfullinn heldur oft á kyndli og stundum vísar kyndilinn niður. Í dulrænum og þeim TAROT spilum sem notuð eru við að iðka galdra er fimmstjarnan á hvolfi við höfuð hans. ÞEGAR SPILIÐ SNÝR RÉTT Óhjákvæmilegur atburður. Freisting. Veikindi. Skapofsi. Reiði. Peningasóun. ÞEGAR SPILIÐ...

Hófsemi (0 álit)

í Dulspeki fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Talið er að uppruni spilsins sé að rekja til vatnsberans Aquarius eða til Ganymedesar sem var ungur prins af Tróju og Seifur rændi til að vera vatns- og bikarberi guðanna. Hann jós vatni hins elífa lífs fyrir þá. Spilið sýnir konu eða engil í síðum kjól að hella vökva á milli tveggja bikara. Í bakgrunni má sjá fjöll og við fætur hennar er oft á og grösug engi. ÞEGAR SPILIÐ SNÝR RÉTT Sparnaður. Sameining. Aðlögun. Samvinna í stað samkeppni. Velmegun vegna góðrar stjórnar. Í einstaka tilfellum...

Dauðinn (0 álit)

í Dulspeki fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Hugsanlega gæti þetta spil verið tengt Moros, en hann var æðri Seifi og ákvað örlög manna. Hann hafði 3 andlit og hétu hin Ked og Þanatos. Oftast er hér á ferð beinagrind með ljá og sker hvort jafnt á þá ríku sem fátæku ,og í flestum þjóðsögum er talað um að hvorki það efra né það neðra sé sanngjarnt en hins vegar sé dauðinn það alltaf, oft á hestbaki og er sól og blíða í kringum hann. Stundum er einnig regnbogi sem er tákn upbreytinga. ÞEGAR SPILIÐ SNÝR RÉTT Þetta spil er í sjálfu sér ekki...

Hengdi maðurinn (1 álit)

í Dulspeki fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Oft á spilum frá miðöldum er hengda manninum líkt við Júdas en talið er að þetta spil eigi uppruna sinn til orfískri dulfræði og dýrkun Díonýsusar. Hengdi maðurinn er mjög rólegur þótt hann sé í raun verið að taka hann af lífi. Hann er hengdur upp á vinstri fæti og myndar kross með þeim hægri. Hendur hans mynda þríhyrning. Sum spil sýna peninga vera að detta úr vösum hans. ÞEGAR SPILIÐ SNÝR RÉTT Viska. Staðfesta. Innsæi. Yfirvegun. Dulræn hugboð og viska. En einnig getur þetta spil táknað...

Styrkur (0 álit)

í Dulspeki fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Þetta spil er tengt sögunni um þjónustustúlkuna Kýrene sem þjónustaði Artemis (mánagyðjan). Appóló varð vitni af því þegar Kýrene barðist við ljón með berum höndum og varð ástfanginn af henni. Nam hann Kýrene burt og eignaðist með henni veiðiguðinn Aristaeus. Spilið sýnir konu með hatt sem er í laginu sem 8 á hlið, en það er merki ódauðleikans. Oftast er hún að glenna upp eða þvinga saman kjafti á ljóni og er konan algerlega óttalaus. ÞEGAR SPILIÐ SNÝR RÉTT Styrkur. Viljastyrkur....

Lukkuhjólið (1 álit)

í Dulspeki fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Þetta spil má rekja til örlaganornanna 3, fortíð, nútíð og framtíð. Því miður þegar miðaldir gengu í garð var þetta spil frekar lýst sem þjáningarhjóli djöfulsins en hefur nú aftur tekið upp sína merkingu og mynd. Sum TAROT byggja þetta spil á sögunni um Mídas konung sem Appollon lét frá asnaeyru og eru því oft þannig eyru á manneskjunum fjórum sem snúast með hjólinu hjólinu sem á stendur “Ég mun stjórna. Ég hef stjórnað. Ég er stjórnlaus. Ég stjórna.” Vængjuð manneskja með kórónu situr uppi...

Einsetumaðurinn (3 álit)

í Dulspeki fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Þetta spil er tengt guðinum Satúrnus, en sagan segir að hann hafi limlest föður sinn og étið börnin sín um leið og þau fæddust. Síðari spámenn hafa þó ekki tekið þessa tengingu alvarlega og nú er litið á þetta spil sem viskuspil og gott fyrir námshæfileika. Spilið sýnir oftast mann sem er einn á ferð en stundum er dýr við hlið hans. Fyrir framan sig heldur hann á ljóskeri en í eldri TAROT spilum er stundarglas í stað ljóskersins. Þetta spil var stundum kallað ljós veraldarinnar. Maðurinn er...

Réttlæti (1 álit)

í Dulspeki fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Hugsanlega er þetta spil tákn höfuðdyggðunum fjórum og siðgæðisreglum stóísku heimspekinganna. Jafnvel vilja sumir tengja þetta spil við stjörnumerkið Meyjuna. Alltaf er kvenmaður á þessu spili sem heldur á vogaskálum í annarri hendi en í hinni er oft sverð sem er tákn hins miskunarlausa réttlætis. Oft er hún berfætt og gras undir fótum hennar. Einnig er kvenmaðurinn oft sýndur sem engill. ÞEGAR SPILIÐ SNÝR RÉTT Jafnvægi. Sanngirni. Réttlæti. Góð lausn í lagarlegum og menntamálum....

Vagninn (0 álit)

í Dulspeki fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Þetta spil er andstæða Trúarleiðtogans og mynda því jafnvægi eins og Keisarinn og Keisaraynjan. Þetta spil vísar til stríðsguðsins Mars og táknar guðleg eyðilegging (Páfinn merkir guðlegur stöðugleiki). Flest TAROT spil sýna Mars brugðnu sverði eða með veldisprota. Hann ber kórónu og eru oft tvö andlit á herðum hans og vísa þau til valdi yfir andstæðum öflum. Það eru margs konar dýr sem draga vagninn. Sum spil sýna ljón, önnur hesta og þá er annar svartur en hinn hvítur. Það eru 4 súlur í...

Elskendurnir (0 álit)

í Dulspeki fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Þetta spil er sérstakt að því leyti að það þýðir ekki eingöngu velgengni og ást, heldur mjög oft raunir og erfiðleikar. Spilið sýnir ráðalausan ungling sem er á milli tveggja kvenna. Oft er önnur konan hátt sett og rík en hin almúgakona sem horfir biðjandi á elskhuga sinn. Fyrir ofan þau situr ástarguðinn Eros á skýji mundaður boga og er í þann mund að skjóta ástarör á elskhugann, og táknar það að í raun hefur maðurinn ekki neitt val um hvora konuna hann velur, heldur er það í höndum hins...

Trúarleiðtoginn (0 álit)

í Dulspeki fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Trúarleiðtoginn er hinn sterki klettur mannsins sem alltaf er hægt að leita til. Hann er fræðimaðurinn, hugvitsmaðurinn og gæddur þeim hæfileika að ná sambandi við yfirnáttúruleg öfl. Talið er að þetta spil sé svipað verndargrip, en þar er krýndur maður í svokölluðu Merkebah hásæti. Talið er að þessi verndargripur sé fyrir aukinni þekkingu á dulspeki og veiti aðstoð við að ná sambandi við hið yfirnáttúrulega. Yfirleytt er þetta spil sýnt þannig að páfi situr á milli tveggja súlna, sem tákna...

Keisarinn (2 álit)

í Dulspeki fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Keisarinn er tákn hins veraldlega valds. Spilið heldur jafnvægi lífsins með Keisaraynjunni, en hún er tákn tilfinningalegs valds. Hann er verndari barnanna, góður stjórnandi og virtur af þegnum sínum. Hann er tákn rökhugsunar og líkamlegs styrks. Sumir telja að þetta spil eigi rætur sínar að rekja til mjög gamals verndargrips sem fannst í arabískri galdrabók, en þar er konungur í hásæti með hnött við fætur sér. Sum TAROT spil sýna einmitt keisarann á þennan máta. Yfirleitt er keisarinn...

Keisaraynjan (0 álit)

í Dulspeki fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Keisaraynjan er oft líkt við móður jörð eða móðirin sem sér um að ala komandi kynslóðir upp. Þessu spili tengist náttúran mikið og sömuleiðis frjósemi og endurnýjun orku. Þetta spil er andstæða rökhugsuna, þetta er spil tilfinninga og heldur því jafnvæginu í heiminum með Keisaranum. Oft er Keisaraynjan í hásæti og heldur á krossi sem er tákn elífðs lífs. Skjöld mikinn hefur hún hægra meginn og með sítt, slegið hár. Einnig hef ég séð hana þungaða á sumum spilum og er þá vísað í...

Æðsti meyprestur (1 álit)

í Dulspeki fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Æðsti meypresturinn er tákn þess sem vill læra, og þá sérstaklega dulspekilegan lærdóm. Æðsti meypresturinn, eða Juno, hefur tvær hliðar. Önnur hliðin er hlið undirheima, en hin er hlið móður og verndarar, bæði fyrir fólk sem og ríkis. Yfirleytt er þetta TAROT spil nr. 2 og einkennist af því að á spilinu er fallega klædd kona með kórónu eða höfuðfat. Stundum við fætur hennar liggur hálfmáni, því Æðsti meyprestur (Juno)er einnig mánagyðjan. Það er frekar algengt að hún sitji á milli tveggja...

Töframaðurinn (0 álit)

í Dulspeki fyrir 21 árum, 6 mánuðum
TÖFRAMAÐURINN Þetta spil hefur tvær merkingar. Töframaðurinn er sá sem leitar sannleikans og reynir að samræma það líkamlega við hið andlega. Hann er gáfaður og kann að bjarga sér úr vandræðum. Hins vegar er hann einnig tákn lyga, undirferli, drottnun og óheiðarleika. Töframaðurinn er annað hvort í gervi töframanns eða skóara. Sem skógari hefur hann stóran hatt og gengur í litskrúðugum fötum. Það sem er sérstakt við hattinn er að hann er látinn halla eins og átta sem er á hlið, en það er...

Fíflið (0 álit)

í Dulspeki fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Jæja hérna er fyrsta greinin sem ég ætla að skrifa um TAROT spilin. Ég ætla að taka eitt spil í einu og byrja á stóru spilunum. Ég tek þau í þeirri röð sem algengast er að þau birtist en röðun stærri TAROT spilana hefur verið síbreytileg. Hér byrja ég á fyrsta spilinu, Fíflið. Þetta spil er annaðhvort ótölusett eða ber tölustafinn 0. FÍFLIÐ Þetta spil er talið eitt það þýðingamesta spilið í stokknum og oft er því líkt við manneskjuna, áhyggjulaus, kærulaus, og fáfrótt. Fíflið er alltaf í...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok