við höfum verið að “þróa” ýktan fiskrétt á mínu heimil og ég bara “verð” að gefa ykkur hann: blaðlaukur(eftir smekk) 1-2 gul epli 1-2 rauðar paprikur 1 askja sveppir(250 gr) 2-3 stönglar sellerí 2-3 fiskflök(ýsa) olía til að steikja úr Allt grænmeti skorið niður í bita,stærð eftir smekk,og steikt á pönnu, fiskurinn skorinn niður í litla bita og þeir kryddaðir með sítrónupipar og salti, grænmetið tekið af pönnunni og geymt á meðan fiskurinn er steiktur,alltí lagi þó að hann fari smærra,...