silungur á grillið jæja nú er maðurinn minn “á fullu” í veiði og því er ég alltaf að elda silung og það besta sem ég veit(af aðferðum við að elda silung) er að flaka hann og salta smá og pipra með sítrónupipar,mylja yfir hann smá gráðost(passa að setja ekki of mikið) pakka flakinu svo inn í álpappír og grilla hann namminamm.

Það er líka hægt að smyrja eldfast mót og leggja flökin í það og krydda eins og baka svo í ofni,það er mjög mikilvægt að elda fiskinn ekki of lengi því að þá verður hann þurr….ss. ekki góður :(

meðlætið sem að mér finnst svo best er einfaldlega agúrka , tómatur,smjör og kartöflur(helst rauðar,litlar)


svo finnst okkur líka bara ágætt að sjóða silunginn og borða hann eð kartöflum og smjöri eða grilla hann heilan…..

hvað eru uppáhalds silungs/laxa uppskriftirnar ykkar??

langar svoooo að prufa eitthvað nýtt ;)

mbk
harpajul
Kveðja