Hér er smá saga sem að ég fékk senda frá mágkonu minni í Svíþjóð:

——-

Saga þessi gerðist fyrir mörgum árum síðan um jólin. Maður nokkur refsaði þriggja ára gamalli dóttur sinni fyrir það að eyða heilli rúllu af gylltum pappír. Ekki var mikið til af peningum á heimilinu og reiddist hann því er barnið reyndi að skreyta lítið box til þess að setja undir jólatréð. Engu að síður færði litla stúlkan föður sínum boxið að gjöf á jóladagsmorgun og sagði : \“ Þetta er handa þér pabbi minn \”. Við þetta skammaðist faðir stúlkunnar sín fyrir viðbrögð sín daginn áður. En reiði hans gaus upp aftur er hann opnaði boxið og áttaði sig á að boxið var tómt. Hann kallaði til dóttur sinnar, \“ veistu ekki að þegar þú gefur einhverjum gjöf, þá á eitthvað að vera í henni ? \” Litla stúlkan leit upp til pabba síns með tárin í augunum og sagði : \“ Ó pabbi minn boxið er ekki tómt. Ég bles fullt af kossum í það. Bara fyrir þig elsku pabbi minn \”. Faðirinn varð miður sín og tók hann utan um litlu stúlkuna sína og bað hana að fyrirgefa sér.

Það er sagt að mörgum árum síðar, þegar að faðir stúlkunnar lést, og hún fór í gegnum eigur hans hafi hún fundið gyllta boxið frá því á jólunum forðum við rúmstokkinn hans þar sem hann hafði geymt það alla tíð; þegar honum leið ekki vel gat hann tekið upp ímyndaðan koss frá henni og minnst allrar ástarinnar sem barnið hans hafði gefið honum og sett í boxið.
Í vissum skilningi höfum við allar lifandi mannverur tekið á móti gylltum boxum frá börnunum okkar, fjölskyldu og vinum, fullum af skilyrðislausri ást og kossum. Það getur enginn gefið dýrmætari gjöf. Í dag skaltu gefa þér augnablik og njóta stórrar handfylli af minningum. Og mundu að þær verma hjarta þitt og bráðna þar, en ekki í höndum þínum.
Höf. óþekktur.


Þetta einhvern veginn ýtir smá við manni að staldra aðeins við og eyða tímanum í \“núið\” eða þannig,muna eftir að gefa börnunum manns og þeim sem manni þykri vænt um smá auka knús….svona smá í minningabankann……

Allavega þá fá mín knús og kossa…..

vonandi fá fleiri efni í minningabankann

harpajul
Kveðja