Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

zorglubb
zorglubb Notandi frá fornöld Karlmaður
4.002 stig
Áhugamál: Ljóð, Danstónlist, Kettir
—–

180° (8 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Í hálfsnúnum heimi væri sá heimski alvitur sá sjóndapri skarpastur allra sá illgjarni alúðlegur og þú ástfangin af mé

Ástin er ekki til (13 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Ástin fyrir mér er ekki til og er eins og regnbogi í augum litblinds manns sem leitar þó ástin fyrir mér er ekki til eins og einhyrningur í ævintýrasögu sem finnst eflaust aldrei ástin fyrir mér er ekki til en ég horfi samt áfram upp í bláhvítan himinn og bíð

Helvítis rigníng (1 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Hylja skítugir hnoðrar sól er hnerrar Guðsi á fold og biðst ekki afsökunar. Sletturnar stinga sér svo úr háloftunum og rennbleyta storð svart malbikið sofandi húsin og mig.

E-mail (7 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum, 11 mánuðum
800x600 pixel af ástarjátningum skína mót þér af skjánum frá mér og þú setur upp ósýnilegt orðleysislegt bros

Regn (3 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum
Hæ þú, tárdropi himnanna sem hófst aðflugið og brotlentir á bílrúðunni. Hvernig er veðrið handan glersins?

Útsýnið út um gluggann, hluti I og II (1 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum
I Hátt rís þú Heimaklettur með haf í kring sem hásæti er svartur himinn vefur um þig ský II Birtan í hamrinum bergmálar og borar göt í myrkrið sem ljósglætuna læsir í sig og leyfir engu

Aprílmorgunn (3 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum
Það var svo svalt úti að titrandi sólargeislarnir hoppuðu inn um herbergisgluggann og hjúfruðu sig að mér smelltu heitum kossi á kinn og kúruðu undir sæng til hádegis.

Lokabeygjan (6 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum
Schumi stígur niður fæti og skarlatsrauð frúin skekur á sér rassinn í skrensbeygju hleypir út öllum hestum og hossar sér í mark.

A recipe for chance (6 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum
Is there any sense for creating, a stir through life with added flavour moving from the bottom, so it won´t burn or end up as stale remaints of untaken chances.

Dreggjar dagsins (5 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum
Seinustu dreggjar dagsins drukknuðu í geislavirkum gárunum og sólin fylgdi syrgjandi með er líkfylgdin sveif að sjóndeildarhring

Von í brjósti (4 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum
Von skal ætíð í brjósti brenna því jafnvel svartasta myrkrið getur af sér ljós og heit sólin hefst á loft í björtu hjarta.

Klæðskiptingur kíkir út (4 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum
Stéttin smellir fingrum í takt við fótatakið og stofugluggi sviptir burt dulunni af nýfrelsaðri stúlku.

13.02.1945 (13 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum
Djöfullinn kom til Dresden í dag drap hundraðþúsund manns, mörg þúsund kjallarasálir kæfði með krumlum sínum Flugu yfir feigir englar fengum að ei gert er rigndi hatri beint frá himni sem brenndi sundur bein og byggingar.

Ég elska þig samt (ljóð um Heimaey) (2 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum
Andlit þitt er svo afskræmt eftir gossins bruna en þú ert samt falleg sem fyrr. Og ég elska þig samt þó lýtaaðgerðirnar hafi mistekist. Og þó sinan hylji ekki sárin þá ertu enn sæt og seiðandi. Þú kallar til mín er ég yfirgef þig, svo mig langar ætíð til baka, til baka til að berja þig augum enn á ný og eiga áfram heima hjá þér.

Seinni heimstyrjöldin, best of, part 2 (5 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 1 mánuði
Augu skimast saman eftir svæðinu, bráðin og bráð skytta. Þruma þýtur um loftið og þrífur með sér líf.

Seinni heimstyrjöldin, best of -part 1 (7 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 1 mánuði
Varla þekkjumst við En viltu Skiptast á sjóðheitum kúlum og hatri í hjartastað? (biðst velvirðingar á þessari græðgi í plássið í dag og lofa því að þetta verður eina skiptið. :) Kveðja, glúbbi)

Dagur rugludallsins (2 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 1 mánuði
Dagurinn í dag er dágott tilefni í brag þó ég kunni ekkert á slíkt reyni ég að semja eitthvað líkt eða allt annað ef því er að skipta þann rétt fer enginn að svipta af mér ég sem eins og ég vil eða þangað til ég nenni því ekki lengur, en er ekki fengur í rugludalli eins og mér? sem semur úr sér glóruna hér? ég bara spyr…

Baðkersdraumar (5 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 1 mánuði
Vatnsheldur víbrarinn vildi hann inn og lét þar vel af vistinni hristist og skók og hún líka svo af tók Í friðarríki í baðkerinu hún á sína sælustund á sér drauma um karlaflauma og guma í gulum gééstreng

Sjö augnablik (3 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Á sjö augnablikum skaparðu heim minn og ert sólin um leið og þú horfir í átt til mín

Gæti verið þú (0 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Líf þitt gæti verið hylur á leið til sjávar sem hafdjúpið hylur og myrkur niðri málar svörtu yfir sjáöldur þín og loka alheiminn úti en hugurinn sér hann samt og vefur haldreipi til að grípa í svo vonarglæta líður upp eins og loftbólur í átt til ljóssins

Tvö lítil ljóð (4 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Það fyrra tileinka ég fallegri stelpu sem fékk þetta agnarlitla ljóð frá mér í gegnum SMS :) -Rigning- Ef væri ég galdramaður myndi ég töfra fram í hverjum regndropa tindrandi ljóma augna þinna. — Það seinna samdi ég á milli jóla og nýárs, ekki endilega í svona skapi, og þó. Athyglislaus felli innrauð tár og útfjólublár grátur minn bergmálar endalaust í tóminu án þess að nokkur sperri eyrun. Glúbbi

Bull (2 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Andvari hvíslar hátt, áttu orð? ekki gætirðu lánað eitt eða tvö til að mynda setningu og enda þessa setningu sem bröltir af þrjósku þó það endi með uppgjöf amk með endi sem hæfir lítillátu ljóði svo gæti sýnt sig og séð önnu

Allt á sér rödd (3 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Ást mín talar mjúklega við hatrið róar niður eins og lognið hafið svo líði um bátur minn blakti við seglin stinn og beri mig í gegnum lífið

Atómskáldaklúbburinn (6 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Gakktu í glaðan bæinn en sýndu af þér tillitsemi og skildu eftir rím stuðla og höfuðstafi í fatahenginu. Hefðbundið má yrkja í sérherbergi þá endilega hentu leirburðinun í öskubakkann því við vitum nú öll að þú gengur vel um.

Án titils (3 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Þungt fellur tjald yfir heim og birtan í þennan geim tvístrast og stjörnur grípa ljósið henda á milli sín dansa saman í stjörnumerkjaleik og hvíslast á við næturvindinn. Tunglið eins og róleg dagmamma vakir yfir dæsir endrum og sinnum og nuddar á sér baldursbrána á meðan svört ský líða hjá og fylgjast með börnum að leik. Hmm, þetta er óttalegt myndlíkingarfyllerí hjá mér hérna en ég læt ljóðið flakka :)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok