Það fyrra tileinka ég fallegri stelpu sem fékk þetta agnarlitla ljóð frá mér í gegnum SMS :)

-Rigning-

Ef væri ég galdramaður
myndi ég töfra fram
í hverjum regndropa
tindrandi ljóma
augna þinna.



Það seinna samdi ég á milli jóla og nýárs, ekki endilega í svona skapi, og þó.


Athyglislaus
felli innrauð tár
og útfjólublár grátur minn
bergmálar endalaust
í tóminu
án þess
að nokkur sperri eyrun.


Glúbbi
—–