Hylja skítugir hnoðrar sól
er hnerrar Guðsi á fold
og biðst ekki afsökunar.
Sletturnar stinga sér svo
úr háloftunum
og rennbleyta storð
svart malbikið
sofandi húsin
og mig.
—–