Ég setti upp Gentoo um daginn. Það var eitt það flóknasta, tímafrekasta og mesti verkur í óæðri enda sem ég hef lent í. Hinsvegar lærði ég alveg ótrúlega mikið á linux af þessu. Maður þarf að rtfma helling en allar leiðbeiningar eru mjög góðar þannig að þetta er í raun ekkert svo erfitt, þó það sé flókið. Ég setti þetta upp á 750mhz tölvu m. 380mb ram og var alveg nokkra daga að compila allt (stage 2 install minnir mig, mæli þess vegna með því að þú notir 3ghz vélina frekar ef þú velur Gentoo ;)