Undanfarið hef ég verið að fylgjast með og taka þátt í umræðunni um 2 hermenn sem stungu Íslending. Ég fór að velta því fyrir mér hvort þessi umræða hefði orðið jafn umfangsmikil ef þetta hefðu einfaldlega verið 2 Íslendingar að stinga annan Íslending. Persónulega tel ég það afar hæpið, allavega hefði umræðan ekki orðið jafn hatramleg, menn voru með lýsingar orð um hóp fólks sem ég tel ekki við hæfi að hafa eftir hér. Ég hef alltaf haldið að við Íslendingar værum ekki kynþáttahatarar, við...