Undanfarið hef ég verið að velta því fyrir mér afhverju ekki hafa verið gerðir góðir star trek leikir lengi. Síðasti Star Trek leikur sem ég fékk mér var Star Trek Elite Force sem suckaði svo virkilega mikið að þegar ég sá að það var kominn Star Trek Elite Force 2 þá þorði ég varla að prófa hann.

En þar sem tölvuleikir geta varla orðið mikið verri en Star Trek Elite Force 1 og 2 þá vona ég að næsti Star Trek leikur verði sæmilegur allavega spilanlegur. Þó skulum við ekki gera okkur miklar vonir um það þar sem Enterprise lofar ekki góðu og næsti leikur verður örugglega um það krapp.

Ég spyr því:
hvar er þín fornafrægð,TNG og TOS?

En allt er í heiminum hverfult og stund þíns fegursta frama
lýsir sem leiftur um nótt, langt fram á sjónvarpskvöld
Star Trek var fagurt og frítt og hugsjónin svo heið og skæ