Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Mér finnst að...

í Stjórnmál fyrir 19 árum, 6 mánuðum
“Ég gef nú ekki mikið fyrir þessa röksemdafærslu. Þú tekur einfaldlega þau réttindi sem þú vilt hafa, “ Ertu drukkinn eða bara svona heimskur? Grunndvallarréttindi eru og hafa alltaf verið flokkuð sem neikvæð mannréttindi þ.e. mannréttidi sem lúta að því að fá að vera í friðði fyrir afskiptum annar. Er þetta of flókið fyrir þig eða viltu nánari útskýringu á þessu? Þessi réttindi eru kölluð grunndvallarréttindi vegna þess að þau er ekki hægt að taka af okkur nema með valdi ólíkt jákvæðum...

Re: Mér finnst að...

í Stjórnmál fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Það er rétt hjá þér að í okkar samfélagi eru flest okkar réttinda tryggð en þó svo að svo væri ekki þá myndi ég alltaf njóta grunnréttindanna. Ég er alltaf frjáls skoðanna minna, trúar minnar og annar grunnréttinda og eina leiðin til að hindra mig í að njóta þeirr er að beita mig þvingunum en þrátt fyrir það verður þessi réttur ekki tekinn af mér þ.e. ef mér væri bannað að tjá mig obinberlega eða á hvaða hátt sem er. Ég mun alltaf hafa mínar skoðanir og tjá mig um þær svo lengi sem ég lifi...

Re: Mér finnst að...

í Stjórnmál fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Hér ertu að misskilja all alvarlega eignaréttinn enda er hann ekki kominn sökum náða ríkisvaldsins það eru félagsleg réttindi. Eins og ég benti á þá fellur eignaréttur hvorki milli félagslegra réttinda né heldur grunnréttinda og hefur því töluverða sérstöðu. Við miðuðum við að eign manna sé komin til vegna vinnu og hæfileika sem auðvitað er háð tíma. Þannig öðlast ég rétt á segjum segjum stól sem ég bý til vegna þess að ég eyddi tíma og hæfileikum m.ö.o. vinnu í að búa hann til og öðlast...

Re: Stofna þyrfti almennilegann miðjuflokk

í Stjórnmál fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Gaur hægrisinnaður vinstriflokkur og vinstrisinnaður hægriflokkur þetta er samfylkinginn í hnotskurn. Þeir vita ekki hvar þeir standa, hvert þeir stefna eða afhverju. Tökum gott dæim flugvöllurinn Dagur sagði í viðtali við rás 2 rétt áður en hann varð leiðtogaefni flokksins að flugvöllurinn ætti að fara til keflavíkur. Síðan fer hann seinna á kosningarfund á kjalarnesi og segir hann þar að flugvöllurinn verði ekki færður því kostnaðurinn væri svo mikill og hann vildi þá einfalda sundabraut...

Re: Mér finnst að...

í Stjórnmál fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Er þá ekki höfundaréttur líka frelsisskerðing? Ég bý til bíómynd og banna þér að fjölfalda hana og selja?

Re: Mér finnst að...

í Stjórnmál fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Það er rétt hjá þér að stjórnmál snúast um það sem fólki finnst en ef þér finnst eitthvað þá er allt í lagi að koma með vel ígrunduð rök fyrir skoðunum þínum. Mér finnst nýting auðlinda vera góð. Þessi setning segir lesandanum lítið annað en mína skoðun. Það sem höfundur greinarinnar er að biðja um eru rök. Dæmi mér finnst nýting auðlinda vera góð vegna þess að….. Nú getur sá sem þetta les komið með einhver mótrök gegn mínum rökum. Ef ég sleppi allri röksemdafræslu er hætta á umræðan verði...

Re: Mér finnst að...

í Stjórnmál fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Skemmtilegt að þú skulir nefna eignarétt en málið er með þann blessaða rétt er að hann er liggur dálítið sérstakur. Við skiptum réttindum oft í raunveruleg réttindi það er neikvæð mannréttindi svo sem tjáningarfrelsi, trúfrelsi, félagafrelsi og ofl í þeim dúr. Síðan vilja sumir tala um jákvætt frelsi en það er félagslegréttindi sem ólíkt raunverulegum réttindum okkar verða að koma frá öðrum svo sem réttur til menntunar, heilbrigðisþjónust og fleirra í þeim dúr. Eignarétturinn fellur því í...

Re: Stórfyrirtækin á Íslandi góð eða slæm?

í Deiglan fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Eins dapurlegt og það er, þá eru einhver mest notuðu „rökin“ fyrir einhverju í stjórnmálaumræðum þau mest veikburða af öllum, nefninlega röksemdarfærsla sem byrjar á orðunum „mér finnst að…“, fylgt eftir með einhverri ósk um afskipti eða afskiptaleysi ríkisins af hinu eða þessu. Hestamönnum finnst þeira eiga að fá ríkisstyrk til hesthúsabygginga því þeim finnst að hlúa verði að íþrótt þeirra. Unnendum klassískar tónlistar í lifandi flutningi finnst að skattgreiðendur eigi að niðurgreiða...

Re: Stórfyrirtækin á Íslandi góð eða slæm?

í Deiglan fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Það hafa aldrei verið fleirri leiðir til að komast áfram í lífinu en einmitt í dag og fjölgar stöðugut með fjölbreittari efnahagskerfi og aukin hagvöxt. Það er ekki rétt hjá þér að miðstéttin sé að dragast saman auk þess er rangt að tala um stéttir í þeim skilningi sem þú gerir. Það sem við erum að sjá í dag er að menn eru að færa sig hraðar milli stétta en áður hefur gerst, því er ekki lengur hægt að segja að menn séu bundnir við þá stétt sem þeir fæðast inn í. Þessu má að öllu leiti þakka...

Re: Stórfyrirtækin á Íslandi góð eða slæm?

í Deiglan fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Þú hefur lítið vit á hagfræði og bara viðskiptum og peningaflæði yfir höfðu. Ef þú hefur bara eitt fyrirtæki í einhverjum bæ og það er atvinnuleysi getur fyrirtæki ráðið til sín starfsmenn á lægri launum en ella það er rétt hjá þér. Það sem gerist hins vegar er að framleiðslan/framleiðnin verður meiri og eykur á hagsæld sem dregur úr atvinnuleysi. Ef þú hefðir verið uppi fyrir 60 árum þegar fyrstu vinnuvélarnar voru að koma til landsins hefðiru eflaust verið einn af þeim sem héldu því fram...

Re: Stórfyrirtækin á Íslandi góð eða slæm?

í Deiglan fyrir 19 árum, 7 mánuðum
þú einnig fyllt innkauparkörfu fyrir 3x minni pening en hérna á Íslandi ef ert snjall í því að spara Það er ekki rétt ég var í námi í USA og það kostar miklu minna að fylla körfuna þar en hér. Ég var að eyða svona 150-200 dollurm í mat á mánuði svo er endalust af matarklúbum og hinu og þessu svo menn geta lifað á nánast engu ef þeir vilja. Þess má til gamans geta að það var enginn tekjuskattur í fylkinu sem ég bjó í.

Re: Stórfyrirtækin á Íslandi góð eða slæm?

í Deiglan fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Reyndu svo að færa rök fyrir því að allir hafi jafnan rétt á að komast áfram Það hafa allir jafnan rétt að komast áfram en sumir eru bara hraðskreiðari en aðrir. Viltu virkilega fara hægja á þeim til að þér líði eitthvað betur? Við eigum öll rétt á að lifa okkar lífi frjáls frá afskiptum annara, við eigum að geta gert það sem við viljum svo framarlega sem við brjótum ekki á frelsi annarra. Ef við virðum þessa reglu hafa allir sama rétt til að finna lífshamingjuna og uppfylla sínar langanir,...

Re: Stórfyrirtækin á Íslandi góð eða slæm?

í Deiglan fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Á hvaða sýru ert þú væninn? Kapítalískur hugsannaháttur er alveg eins og sá sósíalíski að því leiti að ef hann fer út í öfgar fellur hann umm sjálfan sig. Markaðnum er einfaldlega treystandi fyrir sumum hlutum en öðrum ekki, þú sérð bara hvernig kapítalistinn fór með kvótakerfið í Færeyjum. Kapitalismi snýst um frjáls viðskipti/frjálsan markað Frjáls viðskipti eru einfaldlega óþvinguð viðskipti tveggja eða fleirri manna án afskipta þriðja aðila. Hvernig getur slíkt farið út í öfgar??? Mig...

Re: Stórfyrirtækin á Íslandi góð eða slæm?

í Deiglan fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Ég verð sem menntaður þjóðhagfræðingur að draga í efa þennan samanburð þinn enda hafa allar alþjóðlegri mælikvarðar sýnt okkur aðra niðurstöður. Það atvinnuleysi og niðursveifla sem Svíþjóð hefur verið að kljást við frá 1984 og var eflaust verst um 1996 er að mestu of dýru velferðakerfi að kenna. Vandamál efnahagsmála bandaríkjanna var einig af sömu ástæðum gífurlegum ríkisafskiptum á ýmsum sviðum að kenna. Ég legg til að þú byrtir okkur þessa skýrslu eða rannsókn þína ég hefði gaman að sjá...

Re: Stórfyrirtækin á Íslandi góð eða slæm?

í Deiglan fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Menn verða að hafa sínar skoðanir og ófeimnir að tjá sig um þær og þá geta varið þær. Mig langar ekkert sérstaklega að drulla neitt yfir þig(hljómar alveg ágætir gaur) en mig langar samt aðeins að ýta við þér. Eins dapurlegt og það er, þá eru einhver mest notuðu „rökin“ fyrir einhverju í stjórnmálaumræðum þau mest veikburða af öllum, nefninlega röksemdarfærsla sem byrjar á orðunum „mér finnst að…“, fylgt eftir með einhverri ósk um afskipti eða afskiptaleysi ríkisins af hinu eða þessu....

Re: Stórfyrirtækin á Íslandi góð eða slæm?

í Deiglan fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Það er rétt hjá þér að það er margt fólk sem hefur það ekki svo gott en vinnur samt baki brotnu og þarf að sjá fyrir fjölskyldu en hvað viltu gera í því??? Þú getur reynta að borga þessu fólki bætur en það er letjandi og dregur úr vinnusemi og hagvexti auk þess sem við hin sem höfum það bara sæmilegt þurfum að greiða fyrir það. Ég held að lausnin sé sú sem við höfum verið að beita undanfarin ár þ.e. minni ríkisafskipti meira frelsi á vinnumarkaði og bara öllum mörkuðum ekki síst...

Re: 40% bráðnun á norðurpólnum á 33 árum

í Deiglan fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Ef norðurpólinn bráðnar má gera ráðfyrir að yfirborð sjávar hækki um 15cm - 30cm samkvæmt útreikningum geimferðastofnunar Evrópu og NASA

Re: Nú er gaman að vera Austfirðingur

í Deiglan fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Það er leitt að þú skulir halda þig við þá skoðun að ofbeldi gegn einstaklingum sé í lagi svo farmarlega sem þú telur það vera gert fyrir réttan málstað, burt séð frá því hvað fólkið sem ofbeldinu er beitt finnist um það. Ef ég lendi í slysi núna ætti sá sparnaður sem ég hef safnað mér upp að duga vel, þetta er allt spurning um ávöxtun.

Re: Nú er gaman að vera Austfirðingur

í Deiglan fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Velferðakerfi hafa ekkert með kjör fólks að gera það er hagvöxtur og kaupmáttur. Lífsgæði ráðst líka af kaupmætti og hagvexti hagkerfisins. Það er gott að þú takir Sameinuðu Arabísku Furstadæmin sem dæim hjá þér en það er ekki eitt ríkasta land í heimi enda er hagkerfi þess minna er hagkerfi spánar vegna þess að þeir virða ekki frelsi einstaklinga og hamla frjálsviðskipti. er það réttlát að óvinnuhæft fólk deyji úr hungri eða sjúkdómum Réttlát og ekki réttlát eflaust ekki enda slæmt slæmt að...

Re: Nú er gaman að vera Austfirðingur

í Deiglan fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Ríki verða ekki rík vegna þess að þau hafa velferðakerfi. Velferðakerfi verða til vegna þess að þjóðir eru ríkar og þjóðir eru ríkar vegna þess að þau stunda frjáls viðskipti oh leyfa þannig fyrirtækjum og einstaklingum að njóta sín. Það er ekki réttlát að láta hvern og einan sjá um sig sjálfan Þetta er þín skoðun og ég ætla ekki að segja að hún sé röng en ég er ekki sammála þér svo afhverju á ég að borga undir aðra? Afhverju borgar þú ekki bara og það fólk sem er sammála þér í einhverja...

Re: Nú er gaman að vera Austfirðingur

í Deiglan fyrir 19 árum, 7 mánuðum
ÉG held að þú sért eitthvað úti á túni í þessum hugmyndum þínum um frjálshyggju. Afhverju setur fram fullyrðingu á borði við: Það sést nú bara lönd og leið að gott velferðarkerfi nauðsynlegt í nútímaþjóðfélagián þess að rökstyðja það á nokkurn hátt. Hvernig sést það svoan vel??? Velferðakerfi er í dag það lagn lang dýrasta fyrir skattgreiðendur að standa undir með sköttum sínum. Væri ekki sanngjarnt að hver og einn bæri ábyrgð á sjálfum sér og sínum ákvörðunum og léti ekki nágungan greiða...

Re: Nú er gaman að vera Austfirðingur

í Deiglan fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Ég get komið með miklu fleiri rök á móti þessu en með þessu, þótt ég sé sammála einhverjum meðrökum Hvaða rök hefur komið með? Ég hef hitt fólk sem vinnur þarna og flestir ef ekki allir eru hæst ánagðir með það og eru á miklu betri kjörum en þeir vour í á sínu heimalandi. Þú segir líka hvað ef það er galli, líkurnar er litlar því öll svona stór mannvirki er margprófu í hermum við ýmsar aðstæður en það er rétt það er alltaf einhverjar líku á galla en litlar, lífið er lotterí ég meina þú gætir...

Re: Nú er gaman að vera Austfirðingur

í Deiglan fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Hvaða vandamál býr frjálshyggja til? og hvað vandamál heldur að VG get leyst???

Re: KF Nörd vs. 3. flk. Valsstúlkna, the rematch.

í Raunveruleikaþættir fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Þó ég hafi gaman af íslenskri þáttagerð þá eru búbbarnir því miður ekki nógu góðir. Þetta eru vel unnir þættir en allt of mikið af fimmaurum í þessum þáttum. En hugmyndin er djörf og ég vil gefa þeim plús fyrir það sama vil ég segja um nördana, flott hugmynd að fara út í þetta og mörg skemmtileg móment í þessum þáttum. Spurningin er þessu erum við að fara að hlægja að þeim allan tíman eða erum við að fara sjá einhvers konar þroskagöngu hjá þessum drengjum? sem gæti verið gaman en erfitt að...

Re: KF Nörd vs. 3. flk. Valsstúlkna, the rematch.

í Raunveruleikaþættir fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Til að byrja með eru þetta ekki mínir þættir en ég hef unnið að nokkrum íslenskum þáttum bæði hjá s1 og sagafilm og þessir þættir eru bara góðir og vel gerðir. Vandamálið við íslenska þáttagerð er peningaleysi og endalaus samanburður við ameríska þætti. Það er þessi endalausa neikvæðni sem ætlar allt að drepa í þessum bransa. Hvernig væri bara að hrósa því sem vel er gert og hætta að tuða yfir því að það séu til eins þættir annar staðar. Þetta er bara eins og Idolið sem var vel gerður þáttur...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok