Ég vil nú byrja á að taka það fram að þetta er bara ágætis grein. Ég er alveg sammála þér að samræmi milli annars vegar fíkniefnabrota sem í raun brjóta ekki á grunndvallarréttindum einstaklingsins og hins vegar nauðgana sem er með því grófasta broti sem hugsast getur, flokki neðar en morð, er furðulegt. Þar sem þú ert að ýta undir umræðu á þessum málum þá langar mig að koma að þessu frá öðru sjónarhorni. Ég held að flestir átti sig á alvarleika nauðganna en fæstir átta sig á alvarleika þess...