Ég fór í ferðalag,
en var samt aldrei samferða sjálfum mér.
Ég gekk á undan mér,
í gegn um hverja stórborgina á fætur annarri.
Ég kom aftan að mér,
þar sem ég stóð og mótmælti dauðarefsingu minni.
Ég týndi sjálfum mér,
og ráfaði einn um frumskóga í leit að spegilmynd minni.
Ég er ekki enn komin heim,
en sit samt við einn við borð og bíð eftir mér.