Ég eignaðist Ibanezinn fyrir 8 árum síðan og hef ekki tímt að selja hann þar sem þetta er þægilegasti gítar sem ég hef spilað á, en fallegur er hann sosum ekki greyið á nútíma mælikvarða en þótti geðveikur á sínum tíma. Ég held að ég vilji aldrei losna við hann.
Getur ekki verið að hið fræga sprengigos í eyjunni Santorini hafi valdið eyðileggingu á svæðinu, það var nú á svipuðum tíma. Reyndar hef ég sjálfur ekki komið til knossos en á aðra staði á eyjunni
Ég er búinn að spila á gítar síðan 1990, aðallega dauða og þungarokk. Gítarsafnið er svohljóðandi: Ibanez Universe 7 strengja, 1990 módel. B.C Rich N.J series 1988 módel standard. Aria FET acoustic gítar nýr.
Ég myndi arka rakleiðis niður í bóksölu stúdenta og kaupa mér eina góða þykka bók um c/c++ og fara í gegnum hana þó að það taki aðeins lengri tíma en að skoða tutoriala á netinu. Með því færðu mikið dýpri þekkingu á forritunarmálunum og hefur eftir það alltaf bók við hendina ef þú þarft að fletta einhverju upp.
Eina sem ég sé er að það er stafsetningarvilla, arry en ekki array. Svo geturðu ekki notað breytur eins og þú gerir í neðstu línunnai innan einfaldra gæsalappa, þú þarft að nota tvöfaldar gæsalappir ef þú ætlar að setja breytur beint inn í streng.
Þetta er nú bara nokkuð fínt hjá þér en fyrir venjulega síðu ertu að fara nokkuð langt yfir skammt finnst mér, það er hægt að gera þetta mikið einfaldara með því að gera þetta structural og sleppa öllum þessum functionum og klössum. Frekar bara straight forwart í nokkrum skrefum: tengjast mysql Kanna hvort notendanafn og lykilorð sé til Error tjékka Registera session breyturnar og senda notandann á þá síðu sem hann kom frá. En annars mjög fínn kóði hjá þé
Til að svara þér með fréttakerfið þá þarftu að nota forritunarmál eins og PHP, ASP eða svipað. Ef þú ert að spá í forritum til að létta þér verkið þá gætirðu sosum skoðað dreamveawer eða frontpage þó að þau hjálpi þér líklega lítið með að forrita.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..