Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

xark
xark Notandi frá fornöld Karlmaður
750 stig

Re: Frjálshyggjufélagið um sölu Símans

í Deiglan fyrir 20 árum, 10 mánuðum
já, það ætti að nota helst allt til þess að borga niður skuldir. Þetta með að byggja “hátæknisjúkrahús” er nú ansi furðulegt. Það er ekki eins og búnaðurinn í dag sé eitthvað fornlegur, og ekki vantar pláss og sumum deildum er lokað á sumrin.

Re: hlutabréf !

í Fjármál og viðskipti fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Varðandi acta að þá eru spennandi tímar framundan. Þeir hafa jú keypt bandaríska lyfjafyrirtækið Amide, sem byrjar að koma inn í rekstrartölur á 3. fjörðungi þessa árs en 2006 verður þetta allt saman komið inn. Næsta uppgjör (q2) verður líklega ekkert voða merkilegt samt. Því er vonandi að bréfin fari að taka við sér á næstunni enda búið að vera ansi rólegt gengi undanfarið.

Re: Hræsni Íslendinga varðandi vopn og varnarmál.

í Deiglan fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Þetta er nú ekkert ný eða óvænt ógn, bara hæpuð af þeim sem hag hafa af því. Það var löngu búið að vara við hættu á árásum í London og búist var við því.

Re: Að byggja...

í Tilveran fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Það er nú gott að verið sé að byggja blokkir, þá ætti byggðin að vera þéttari. Það er komið alveg yfirgengilega nóg af þessum 1-2 hæða húsum útum allt, þannig að frekar lítill íbúafjöldi hefur dreifst yfir mjög mikið svæði.

Re: spennan vex

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 10 mánuðum
“Fólkið virðist ekki sérlega ánægt með breytinguna. Ein fimm manna fjölskylda sagðist t.d. aðeins fá 60 fermetra íbúð.” Ísraelar hafa heimtað 2,2 milljarða dollara frá BNA útaf þessum flutningi sem er því um 250.000 $ á hvern landnema. Þeir hljóta því að geta reddað þessu :P En það er alveg ótrúlegt hvernig BNA hefur látið ísrael fara með sig og hafa ísraelsmenn komið því þannig fyrir að nær ómögulegt er fyrir BNA að neita þeim um “styrk”. En fyrir utan þessa 2,2 milljarða $ fær ísrael 2,8...

Re: versló

í Tilveran fyrir 20 árum, 10 mánuðum
nei, labbaði bara framhjá þeim í miðbæ akureyrar, meiri skítastemmningin þar.

Re: Atvinnubílstjóraaðgerðirnar

í Tilveran fyrir 20 árum, 10 mánuðum
heh þessi litaða olía er nú meira grínið. seinast þegar ég las um litaða olíu, var þegar hvernig Þjóðverjar lituðu olíu mismunandi litum í stríðinu eftir því hvar átti að nota þær :D Og það verður náttúrulega ekki hægt að hafa neitt eftirlit með þessu, ætli það verði ekki 2 sérlegir litunareftirlismenn ríkisins á landinu :D Það átti bara að leggja niður þungaskatt og hafa disel-verð töluvert lægra en bensínverð og stuðla þannig að aukinni Disel-notkun: disel vélar eyða þriðjungi minna og því...

Re: Atvinnubílstjóraaðgerðirnar

í Tilveran fyrir 20 árum, 10 mánuðum
þú ert kannski að meina að í gamla kerfinu sluppu margir vel, því þar greiddu menn þungaskatt(sem fór eftir ekinni vegalengd) en núna er búið að bæta við olíugjaldi þannig að þessi tæki(kranabílar ogfl) eru að borga olíuna(sem þeir eyða miklu af) fullu gjaldi, þótt þeir aki lítið.

Re: Atvinnubílstjóraaðgerðirnar

í Tilveran fyrir 20 árum, 10 mánuðum
svíkja undan þungaskatti, hvernig getur það hafa verið algengt ? “þetta er kostnaður sem áður var innheimtur með þungaskatti, en núna olíugjaldi.” Það er ekkert bara þetta. Það er líka sérstakt kílometragjald, sem byrjar við 10.000 kg af leyfðri heildarþyngd og eykst svo eftir því sem þyngdin er meiri. Og það er enginn lausn að velta þessu bara yfir á neytandann. Viðskipti minnka bara ef þeir þurfa að hækka gjaldskrá sína mikið.

Re: Atvinnubílstjóraaðgerðirnar

í Tilveran fyrir 20 árum, 10 mánuðum
já, þeir nota (flest)allir Diesel, amk þeir sem keyra af einhverri alvöru. Man ekki hvað það var, minnir að 50 þús. km á ári er svona normal leigubílaakstur. Þungaskatturinn borgar sig upp á ákv. fjölda km. og þegar komið er upp háar vegalengdir var það mikill plús að hafa Diesel. En þetta er öðruvísi núna eftir breytinguna og leigubílar hafa tapað á henni, því nú er komið “bensínverð” á dieselinn og sparnaðurinn af því að borga þungaskatt ef keyrt er mikið er farinn.

Re: Atvinnubílstjóraaðgerðirnar

í Tilveran fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Annars held ég að aðgerðir sem þessar séu það eina sem stjórnmálamenn hér skilja. Hingað til hafa þeir allir komist upp með það að svíkja loforð og stunda vafasöm vinnubrögð, vegna þess að aldrei verið mótmælt almennilega (það er látið nægja að lýsa yfir reiði sinni í matarboðum, og þeir allra hörðustu hafa slett skyri :D ).

Re: Atvinnubílstjóraaðgerðirnar

í Tilveran fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Já, hingað til hef ég verið fygljandi fyrirhugðum aðgerðum bílstjórana, þótt þær munu án efa trufla ferð mína. Finnst reyndar full vafasamt að hafna fundi en er samt ekki alveg viss um það.. Þótt Geir hafi boðað til fundar er ekkert víst að það komið nokkurt útúr því, þar sem Geir hefur ekkert sagt: “ég mun leysa þetta mál”, sem hann hlýtur að þurfa að gera. Því lítur þetta fundaboð eiginlega út sem úrræði Geirs til þess að forða töfum upp í sumarbústaðinn sinn :)

Re: Skjóta fyrst - spyrja svo?

í Deiglan fyrir 20 árum, 10 mánuðum
rugl hvað, þetta liggur alveg fyrir. Þeir skutu hann ekkert 8 sinnum, þar af 7 sinnum í hausinn á ferð, hann var kominn niður. Þar fyrir utan er slík hittni á ferð ekki möguleg, nema í mesta lagi í tölvuleikjum.

Re: Skjóta fyrst - spyrja svo?

í Deiglan fyrir 20 árum, 10 mánuðum
“Þá var hann ekki að hlaupa frá lögregluni” En hann hefði getað sprengt sig þar, og fyrst hann gerði það ekki í vagninum, hvaða ástæða var þá til að ætla að hann hefði sprengt sig annars staðar.. Löggan hefði stoppað hann áður en hann fór í strætóinn ef þeir héldu raunverulegulega að hann væri hryðjuverkamaður. “Það er alveg satt en ég styð þetta samt því að næst þegar þetta gerist þá er það kannski hryðjuverkamaður í raun og veru.” Kannski já, en kannski ekki. Og hversu marga saklausa...

Re: Skjóta fyrst - spyrja svo?

í Deiglan fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Samt leyfði löggan honum að fara í strætó í 15 mín. Og hann kom frá fjölbýlishúsi, það dugar lítið..

Re: Skjóta fyrst - spyrja svo?

í Deiglan fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Eins og margbúið er að benda á, hefði hann getað haft margar ástæður til þess að flýja lögrelguna, td smáglæpi ogfl, og eftir á kom í ljósað hann hafði reyndar eina. Dvalarleyfið eða hvað sem það var, var útrunnið hjá honum og hann hefur sjálfsagt reynt að flýja til þess að komast hjá því að vera rekinn úr landi. Og svo má til gamans geta að þaðan sem hann kom, í Brasilíu, skýtur lögreglan mörg hundruð saklausa einstaklinga á hverju ári, í sínum “hreingerningum” og því hefur hann líklega...

Re: Skjóta fyrst - spyrja svo?

í Deiglan fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Ef hann var með sprengju á sér: Af hverju í fjáranum að flýja lögrelguna? Sjálfsmorðssprengjumaður hefði ekki hlaupið undan löggum til þess að komast á áfangastað. Hann hefði drepið þá sem hann hefði náð í,hér heilar 20 löggur. Fyrir utan það var lögreglan búinn að ná honum niður og héldu honum, síðan var hann skotinn 8 sinnum í hausinn. Ef hann hefði ætlað að sprengja sig hefði hann verið löngu búinn að því. Paranoia og klúður er útskýringin á þessu morði.

Re: Skjóta fyrst - spyrja svo?

í Deiglan fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Ef maðurinn hefði verið hryðjuverkamaður, hvers vegna komst hann alla leið inn í lestina áður en hann var skotinn? Og hvers vegna var hann látinn afskiptalaus í strætó í 15 mínútur? Þetta er náttúrulega bara eitt stórt klúður.

Re: Deutsche Bank

í Fjármál og viðskipti fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Það gerist líklega lítið í þessum málum, fyrr en við tökum upp evruna. (kannski væri nóg að tengja krónuna við evruna.)

Re: Sjálfstæðismenn fella grímuna

í Deiglan fyrir 20 árum, 10 mánuðum
já, þeir hafa lítið haft fram að færa annað en nöldur um Línu.net :)

Re: Hvernig spila á Póker

í Tilveran fyrir 20 árum, 10 mánuðum
já, það væri án efa ansi nett. Það ætti að breyta þessum spila-lögum hér á landi og þannig gæti t.d. Burðarás keypt Perluna og hafið fjárhættuspilarekstur, en þeir eru nýbúnir að kaupa sænskt spilafyrirtæki.

Re: Neistaflug!

í Tilveran fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Með suðurleiðinni sleppur maður við Blönduós-lögguna, borga í Hvalfjarðargöng, og að borða í Hyrnunni :)

Re: Hryðjuverkamenn og Hermenn

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 10 mánuðum
bandaríkjamenn skjóta 1.000.000$ stýriflaug á hus og drepa 20, það er hernaðarlegt skotmark. Hryðjuverka maður festir við sig 200$ sprengjiefni og ræðst gegn forseta íraks, 2 deyja og 4 slasast. þá er það hræðilegt hryðjuverk “Terrorism is the poor man's war. War is the rich man's terrorism.” ..

Re: Hversu sniðugar eru sparnaðarleiðir bankanna?

í Fjármál og viðskipti fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Hef keypt smávegis af úrvalsbréfum Landsbankans og það hefur bara verið nokkuð gott. Þótt það sé reyndar “mikil áhætta” hefur ávöxtunin verið mjög góð síðustu árin, eða 48% á ári seinustu 3 ár að meðaltali. En þau lækkuðu reyndar um 17 og 23,6% árin 2000 og 2001. Þannig að maður þyrfti helst að fylgjast aðeins með og vera viðbúinn ef(þegar) það kemur aftur leiðrétting á markaðnum.

Re: Verslunarmannahelgin !

í Tilveran fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Akureyri
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok