Er búinn að vera að kennan félögum mínum póker núna síðustu daga. Sko ekki fatapóker heldur bara þennan classíska Texas Hold'em en þannig er mál með vexti að þeir halda að ég sé að kenna þeim þetta vitlaust sem er ekki rétt.. Allt rétt eins og ég er að kenna þeim það en þeir trúa því ekki, erum nú ekki að fara að spila uppá peninga.. Bara svona pókerspilapeninga í djókinu þannig skil ekki af hverju þeir halda að ég sé að kenna þetta vitlaust. Getur einhver komið með leiðbeningar sem ég get prentað út og sýnt þeim. Helst bara á íslensku ef einhver kann þetta og er tilbúin að punkta þetta niður og senda mér. Því þetta er allveg hevy skemmtilegt spil bara leitt hvað það er eins og fáir kunni þetta. Svo er maður að bíða eftir svona allvöru pókersetti svo að það fari að færast fjör í leikinn. Skil bara ekki af hverju þeir halda að ég sé að kenna þeim þetta vitlaust því að ég myndi hvort sem er aldrei fara að leggja fjármuni í þetta og spila uppá þá. Þetta er nú bara spil.
Cinemeccanica