viðhorf gagnvart kannabis voru mótuð fyrir tíma hippanna (alla vega í BNA). gras hefur alveg verið rannsakað í gegnum tíðina, en þegar menn fengu ekki þær niðurstöður sem þeir vildu þá var einfaldlega litið fram hjá rannsóknum eða þær falsaðar með lúalegum aðferðum
Ég geri það þegar ég er kominn með leið á uppáhalds réttinum mínum. Það er fínt að éta tilbreytingalítinn mat ef maður veit að hann er alltaf góður. Hins vegar, ef tilbreytingaleysið er byrjað að bitna á gæðum matarins þá auðvitað breytir maður til þar sem forsendurnar eru þá orðnar aðrar. En það að fá sér sama bátinn á subway finnst mér langt frá því að vera vitleysa
Það er almennur misskilningur að stærri og miðstýrðari stjórn sé kostnaðarminni eða hagkvæmari en lítil stjórn. Með litlar stjórnir sem vinna í nánara samstarfi með þeim sem þær eiga að vinna fyrir þá eru minni líkur á að stjórnin framkvæmi eitthvað sem er á skjön við álit almennings. helstu gallar ESB eru allt of mikið vald á höndum of fárra einstaklinga. http://www.youtube.com/watch?v=WtzrqvPfnE0&feature=channel_page http://www.youtube.com/watch?v=iqsppmBsTdE&feature=channel_page fínar...
af hverju ætti það að vera vitleysa? prófa nýtt og nýtt, verða fyrir vonbrigðum aftur og aftur á meðan maður veit alveg upp á hár hvað mann langar í raun og veru til þess að éta?
Þau heita eiturlyf vegna þess að þau eru bönnuð og þau eru bönnuð vegna þess að þau heita eiturlyf. Hringsönnun á lægsta og óvitsmunalegsta plani sem ég hef nokkur tímann komist í kynni við. Það sem veldur mestum skaða í okkar samfélagi í málum vímuefna eru ekki efnin sjálf heldur einmitt bannið gegn þeim og fordómar almennings.
enda er líklegast verið að tala um ákveðið magn af mdma… Það þarf enginn að segja þér heldur að þegar menn mæla skaðsemi áfengis þá eru menn ekki að prófa tréspíra vegna þess að fólk gæti óvart drukkið hann
Það er eins og að segja að áfengi geti verið hættulegt vegna þess að kannski er maður alls ekkert að drekka áfengi heldur tréspíra. exstacy er nafn yfir MDMA.
Þú ert að tengja saman húðlit og menningarheim án nokkurs rökstuðnings. 'Svart fólk' sem elst upp í úthverfum í BNA er alveg jafn ‘siðmenntað’ ef þú vilt orða það þannig. 'Hvítt barn' sem elst upp í fátækrahverfi verður alveg jafn ‘frumstætt’ og aðrir íbúar hverfisins. lægri vitsmunir svartra? Það hefur mögulega verið sýnt fram á að meðaltal yfir útkomu gáfnaprófa hjá svörtum íbúum Ameríku er að jafnaði lægri en ‘hvítra’. Það þýðir ekki að svartir geti ekki verið fluggáfaðir og hvítir mjög heimskir.
Af hverju ekki? hvað skiptir það þig máli hvernig annað fólk lifir sínu lífi? Er eitthvað heilagt samband milli lifnaðarhátta og staðsetningar á jörðinni?
það er ekkert hjátrú, það er bara einfaldlega gisk. Ef maður veit ekki 8 spurning á prófinu þá skellir maður krossum þar og ef það eru fjórir möguleikar í hverri spurningu þá er líklegast að maður fái alla vega 2 rétta
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..