Ég hef flutt inn 3 hunda, bæði frá Svíþjóð og Englandi. Best væri fyrir þig að fá hund frá Svíþj, Englandi, Danmörku eða Noregi, því að þá þurfa þeir að vera styttra í Hrísey (6 vikur í stað 8 vikur). Landbúnaðarráðuneytið er nýbúið að breyta reglunum með aldur dýrsins þegar að það kemur til landsins.. Núna þarf dýrið að vera 5 mánaða. Það er náttúrulega alltaf erfiðast að finna góðan ræktanda, sérstaklega þegar að þú ert að flytja inn í fyrsta skipti. Þú verður nú fyrst að ákvaða tegundina...