Hæ allir. Nú er smá problem í gangi. Best að ég segi ykkur söguna:
Þegar ég var lítil stelpa, og fram á daginn í dag, hefur fjölskyldumyndin samanstaðið af mömmu, pabba, b0rnum og HUNDI!
Ég vil fá sætann krúttlegann fjölskylduhund sem passar við fínu flottu myndina mína.
Málið er að maðurinn sem ég slysaðist til að fara að búa með er morðótt veiðikvikindi sem tekur ekkert annað í mál en að fá einhvern morðóðann veiðikvikindishund!!
Einhvern voffster eða eikkvað sem mér finnast bara ekkert skemmtilegir! Reyndar gæti það komið af því að einu voffsterarnir sem ég þekki eru mjög illa aldnir upp, og búa hjá manni sem er aldrei heima og konu sem ekkert nennr að sinna þeim.
Veit einhver hér hvort að sá töfrahundur er til sem er bæði fjölsk. dýr OG morðótt veiðidýr þegar það hentar? =)