Þið eigið hrós skilið fyrir þessa mynd! Vel unnin, mikill metnaður lagður í hljóðvinnslu og greinilegt að þið lögðuð ykkur alla fram við þetta. Ég hreinlega emjaði úr hlátri þegar nördinn kom fyrst í mynd, lagið var svo rosalega viðeigandi. Og þið notuðuð það líka hárrétt, með hraðabreytingunum. Hljóðsetning töffaranna var líka skrambi góð, þessi “grunt” hljóð pössuðu mjög vel við. Flashback atriðið var frábært og lagið við það mjög vel valið. Maður fann bara virkilega til með greyið...