Norska lagið minnir svo mikið á eitthvað Bon Jovi lag, man ekki alveg hvaða. En ég heyrði strax og ég hlustaði á norska lagið fyrst að come on stefið er stolið… En annars er það alveg gott lag, en hræðilegir búningar. Danska lagið finnst mér flott. Góður söngvari og fínt lag… Svo er að hlusta á breska lagið núna, og það finnst mér hrikalegt. Ég er ekki alveg viss hvernig Selmu muni ganga, er samt nokkuð viss um að við verðum í topp 10, en okkur gengur samt örugglega ekki eins vel og síðast...