Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Kim Larsen

í Tilveran fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Og hvað, ertu of kúl fyrir Dani? Er það rosalega “lame” að hlusta á danska tónlist? Er “lame” að vera danskur? Ég er hálfur Dani og ég er stolt af því. Ég hef ekkert á móti Kim Larsen og get vel hugsað mér að fara á tónleikana hans. Ekki hata ég þig fyrir að hafa öðruvísi tónlistarsmekk en ég.

Re: Samræmdu prófin

í Tilveran fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Ekki dissa það sem þú veist ekkert um. Ég er að vinna í Bónus núna meðan ég er að klára grunnskólann og það er fínt. Hærra en 400 kr á tímann sko… Hef samt ekkert hugsað mér að vinna þarna í framtíðinni…Stefni á MR.

Re: Hræðilegt

í Tilveran fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Hvað er að þeim? Ræna einum frægustu málverkum heims til þess eins að brenna þau en ekki græða milljónir á þeim.

Re: Hvað er besti sjónvarps þáttur allra tíma ?

í Tilveran fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Lost (sjúklega spennandi!) 24 (1.serían samt langbest, búin að sjá 2. líka og smá í 4.) One Tree Hill (ekki hata mig…) Friends (ég fæ bara ekki leið á þeim :P) Bráðavaktin og Gilmore Girls.

Re: GNR fans?

í Tilveran fyrir 20 árum, 12 mánuðum
Guns in Roses? Ég er nokkuð viss um að það sé ‘and’ frekar en ‘in’. Hef aldrei heyrt talað um Guns in Roses.

Re: GNR fans?

í Tilveran fyrir 20 árum, 12 mánuðum
Ég hlusta oft á þá :) Btw. það er ‘Guns N’ (and) Roses', ekki ‘in’…

Re: ATH: Hertar reglur!

í Tíska & útlit fyrir 20 árum, 12 mánuðum
Kitkat: Ertu að meina eins og þessi? Fínn vefpúki sem fer yfir stafsetningarvillur. Annars líst mér vel á að herða reglurnar aðeins.

Re: SÍÐASTUR TIL AÐ SVARA FÆR 1000 KALL!!!1

í Tilveran fyrir 20 árum, 12 mánuðum
Ég ákvað að bíða með að svara þangað til korkurinn færi af “heitum umræðum” :P

Re: öff

í Tilveran fyrir 20 árum, 12 mánuðum
Kannast við þetta. Eins og í gær, var í skólanum til hálf 5, fór þá beint að vinna til 8, kom heim, borðaði, æfði mig fyrir stigspróf sem ég er að fara í á fimmtudaginn og þurfti svo að vaka til 1 um nóttina til að læra fyrir enskupróf sem ég tók í dag og klára eitthvað fyrir íslensku. Svo eru þessi samræmdu próf að gera út af við mig, sjúklega mikið að lesa fyrir náttúru- og samfélagsfræði, og ég þarf að eyða öllum mínum frístundum í að læra það… Þannig ég get örugglega ekkert slakað á fyrr...

Re: Hvaða land?

í Tilveran fyrir 20 árum, 12 mánuðum
Ég myndi örugglega fljóta með fjölskyldunni til Danmerkur… Þar sem mamma mín er Dani þá á ég fullt af ættingjum þar þannig ég er nokkuð viss um að ég færi þangað. Ef ekki, þá til Noregs (Bergen helst) til systur minnar.

Re: Föt og fl. í útlöndum.

í Tíska & útlit fyrir 20 árum, 12 mánuðum
Mér finnst þægilegast að vera í léttum og víðum kvartbuxum og pilsum í sólarlöndum og svo bara taka nóg af hlýra- og stuttermabolum og sandala, kínaskó eða svona netaskó. Gott að hafa þunna peysu/gollu líka, getur orðið svolítið svalt á kvöldin.

Re: Búðir

í Tíska & útlit fyrir 20 árum, 12 mánuðum
Búðirnar sem ég versla oftast í eru Vero Moda, 17 og Zara og stundum TopShop, Deres og Centrum. Skóbúðirnar eru aðallega Focus og Skór.is, annars kaupi ég mér sjaldan skó… Svo dýrka ég H&M, á helling af bolum og peysum þaðan.

Re: Samræmdu

í Skóli fyrir 20 árum, 12 mánuðum
1. Byrjaði að læra þegar aukatímarnir byrjuðu, sem var í kringum páskana. 2. Eyði ekki beint öllum helgum í að læra, en reyni samt að læra eitthvað á öllum frídögum eða þegar ég hef tíma. 3. Kvíði smá fyrir þeim, aðallega náttúrufræði og samfélagsfræði, en reyndar þarf ég ekki að ná þeim ef ég fer á málabraut í MR…þannig ég er ekkert að stressa mig svo mikið yfir þeim.

Re: Danska

í Hugi fyrir 20 árum, 12 mánuðum
Hehe ok, vildi bara vera viss um að þú værir ekki að eyða tíma í að þýða fyrst á ensku og svo á dönsku ;)

Re: Danska

í Hugi fyrir 20 árum, 12 mánuðum
Það er líka hægt að stilla þetta sem stinkytoe sendi á að þýða íslensku yfir á dönsku… Bara svo þú vitir það.

Re: Klassískir gítarleikarar

í Klassík fyrir 20 árum, 12 mánuðum
Hey ég var að spila með honum á þessum tónleikum :P Var í 2. fiðlu… Varst þú líka í hljómsveitinni? En já, hann spilar ekkert smá vel finnst mér.

Re: hvaða skóli?

í Skóli fyrir 20 árum, 12 mánuðum
Er að klára Varmárskóla og stefni á MR.

Re: Tónlistarsmekkur?

í Músík almennt fyrir 20 árum, 12 mánuðum
Norah Jones, Amos Lee, Damien Rice, Emiliana Torrini, REM, Guns ‘n’ Roses, U2, AC/DC, The Calling, Beach Boys, Bítlarnir, Queen og þess háttar.

Re: Hvenær áttu afmæli?

í Tilveran fyrir 20 árum, 12 mánuðum
Æjæj… Já það voru líka flestir að hugsa um Díönu þennan dag, en ég var nú bara 8 ára þannig ég var ekkert mikið að hugsa um það… En annars er þetta náttúrulega besti dagurinn til að eiga afmæli á :P

Re: Hvenær áttu afmæli?

í Tilveran fyrir 20 árum, 12 mánuðum
31. ágúst og hmm… best að kíkja í afmælisdagabókina… Sami afmælisdagur: Jóhannes Jónsson kaupmaður í Bónus (það hlítur að veita á gott, ég vinn í Bónus :P), Van Morrison söngvari og Olga Guðrún Árnadóttir rithöfundur. Svo er þetta sami dagur og Díana prinsessa lést.

Re: Desperate Housewifes

í Spenna / Drama fyrir 20 árum, 12 mánuðum
Ég hef séð 2 eða 3 þætti og þeir eru bara ágætir, hafði reyndar engan áhuga á að horfa á þá þegar þeir byrjuðu og það er frekar erfitt að koma inn í þættina ef maður hefur ekki séð byrjunina… En þátturinn í gær var þvílíkt spennandi :P Ætla pottþétt að horfa á næsta þátt :P

Re: Gleðilegt sumar!!!

í Tilveran fyrir 21 árum
Fékk enga sumargjöf í þetta skiptið… Eða jú mamma kom heim með blómvönd handa mér áðan… Ég er víst vaxin upp úr gjöfunum.

Re: Tregir kennarar

í Tilveran fyrir 21 árum
Haha já sumir eru bara svo tregir :P Bekkurinn minn fór í tölvur í einum tíma um daginn og vorum að gera ritgerð, vinkona mín fann ekki Word í tölvunni sem hún var í og sagði kennaranum að það væri ekkert Word í tölvunni. Þá fór kennarinn að sýna henni hvernig hún fyndi einhverjar síður sem tengjast efninu sem við áttum að skrifa um! Hann var ekkert að fatta hvað hún var að segja!

Re: Vorpróf!

í Tilveran fyrir 21 árum
Oh, djöfull öfunda ég ykkur framhaldsskólanemana! Hlakka ekkert smá til næsta skólaárs :P

Re: Vorpróf!

í Tilveran fyrir 21 árum
Samræmdu prófin byrja 9. maí og síðasta prófið er 18., svo byrja vorprófin strax á eftir, örugglega í kringum 23., eftir helgina. Fer samt örugglega bara í örfá vorpróf, búin að taka svo mörg próf nýlega. Verð örugglega búin í prófum um 30. maí og 1. júní fer ég í útskriftarferð :)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok