Já Americas next top model í fullum gangi, eða reyndar er byrjuð ný sería úti.. en við erum eftir á ;)
Já Norelle fór núna í seinasta þætti .. mér var samt farið að líka mjög vel við þessa stelpu. Farin að læra aðeins á myndavélarnar og bara orðin góð í þessu. En annars Fór Nicole á undan henni og ég skil ekki hvernig þau tóku ekki eftir henni. Mér persónulega fannst hún vera með svo fullkomið andlit!

En annars er Eva eftir sem er náttúrulega mjög falleg og já hún er ekki svona hávaxin eins og hinar en samt sést það ekkert. Myndast alltaf vel.

Og svo er Ann, hún er ekki alveg að meika þetta finnst mér. Myndast eigilega aldrei vel og bara svona frekar .. veit ekki orðið yfir það.

Yaya er svo líka og hún myndast bara þvílíkt vel og vinnur allar keppnir, þíðir samt ekkert að hún vinni. Persónulega held ég með henni.

Amanda sorry en hún er eins og uppvakningur með hvítt hár. Mitt álit.

Já hvað finnst ykkur um þær? :]