Það er nú ljótt að vera að gera grín að dreifurunum, þeir geta ekkert að þessu gert… Ég verð nú bara að játa það að ég ber nokkra virðingu fyrir þeim að láta sig hafa það að vera hiphoparar, þrátt fyrir að hafa hvorki Popptíví né FM, og svo er enska ekki kennd nema sem valgrein í 10. bekk, en fæstir komast svo langt þannig að það er kannski ekki að marka. Síðasta sumar var ég úti á landi í nokkrar vikur að kynna mér stöðu mála í hiphop heiminum og komst að ýmsu sniðugu. Ég var að rölta á...