Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

tolli
tolli Notandi frá fornöld 42 ára karlmaður
122 stig

Allaire og Macromedia (17 álit)

í Vefsíðugerð fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Jæja, góðir hálsar. Ekki datt mér þetta í hug. Eins og lesa má á vef Allaire, http://www.allaire.com/macromedia, eru þeir á leiðinni að undir eina sæng, og starfa undir því (að mínu mati) ógeðfellda nafni Macromedia. Allaire heyrði ég fyrst minnst á fyrir nokkrum árum, þegar þeir keyptu HomeSite, snilldina sem Nick nokkur Bradbury hafði verið að malla, og ég fílað í botn í nokkra mánuði. Síðan þá hafa þeir stækkað heilmikið, og meðal annars keyptu þeir JRun, sem er ekki minni snilld en...

JavaScript misnotkun (17 álit)

í Vefsíðugerð fyrir 23 árum, 5 mánuðum
JavaScript er sniðugt, sé það rétt notað. Mín hugmynd um rétta notkun er að nota það til að búa til auka fítusa sem laða að, eða útfæra hluti á aðeins snyrtilegri hátt. Dæmi um þetta eru popup gluggar. Hér á Huga hef ég séð gerð sömu mistök og alltof margir gera. Besta dæmið er að skoða notanda… smellið á “tolli” hér að neðan. Tengillinn er gerður með Anchor-tagi (A), en í gamla daga var það eina sem gert var við hann til að tengja í síðu að setja href=“bla.html”. Nú, þegar JavaScript kom...

KDE 2.0 komið út (5 álit)

í Linux fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Já, <a href="http://www.kde.org“>KDE 2.0</a> kom út fyrir einhverjum dögum eða vikum síðan. Ég hef því miður ekki tíma til að stússast mikið í X og KDE þessa dagana, en kemur allt eftir helgi. Ég geri fastlega ráð fyrir því að menn hafi skeggrætt fram og til baka um þetta nýjasta afsprengi KDE hópsins, en eins og ég sagði, þá hef ég ekki fylgst mikið með því sjálfur. En í morgun rak ég augun í gríðar <a...

Faðernismáli vísað frá héraðsdómi (10 álit)

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ég bara varð að tjá mig um þetta, en ég er semsagt að horfa á fréttirnar í Ísland í Bítið. Ekki spyrja afhverju. Nú… þarna var verið að segja frá því að kona á barn, sem ekki hefur verið feðrað. Maður segist vera faðir þess og vill að konan viðurkenni það, en hún neitar, og málið fer fyrir héraðsdóm. Nú, málinu var vísað frá, því, skv. frétt Stöðvar 2, eru það aðeins mæður og börn sem hingað til hafa verið sækjendur í svona málum (kona vill að kallinn sé “dæmdur” faðir barns svo hún fái...

Ekki alveg réttur vettvangur, kannski.. (1 álit)

í Dulspeki fyrir 23 árum, 8 mánuðum
… eða hvað? Merkilegt. Á Erfðafræði-Íslandi er starfsræktur einn Hugi, þessi Hugi, enginn annar (enda enginn annar), og það er ekkert um erfðafræði eða líftæknifræði eða… líffræði… eða eitthvað þannig. Það sem ég er að velta fyrir mér… er hvort að það sé til gen sem sé IP-tölu genið. Já, fyrir þá sem ekki vita stendur IP fyrir Internet Protocol, og IP-tala er semsagt “IP Address” á ensku, og er notað til að greina vélar í sundur (án þess að ég verði of tæknilegur, þetta er orðið of tæknilegt...

Hvað er dulspeki? (7 álit)

í Dulspeki fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Hvað er dulspeki? Þetta er spurning sem maðurinn hefur spurt sjálfan sig og aðra að síðan Eva nartaði í eplið hér forðum daga. Er það ekki fyrsta pælingin um dulspeki? Svarið við spurningunni „Hvernig talaði höggormurinn við Evu og sagði henni að borða eplið?“ er jú þakið dulúð, og enginn hefur getað svarað mér því enn. Þetta svarar spurningunni samt ekki, en þetta gefur örlitla innsýn um hvað hægt er að ræða um hér.
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok