Hvað er dulspeki? Þetta er spurning sem maðurinn hefur spurt sjálfan sig og aðra að síðan Eva nartaði í eplið hér forðum daga. Er það ekki fyrsta pælingin um dulspeki? Svarið við spurningunni „Hvernig talaði höggormurinn við Evu og sagði henni að borða eplið?“ er jú þakið dulúð, og enginn hefur getað svarað mér því enn.
Þetta svarar spurningunni samt ekki, en þetta gefur örlitla innsýn um hvað hægt er að ræða um hér.