Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

tmar
tmar Notandi frá fornöld Karlmaður
3.172 stig

Re: Stjórnendur ath.

í Spunaspil fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Því miður þá fæ ég ekki séð hvernig það getur gengið upp. Það verður bara að viðurkennast, að helsta ástæðan fyrir þessu er sú, að mörgum spilurum hættir til að túlka reglur sér í hag og búa til algera osta (cheeze!). Ef spilarar væru upp til hópa heiðarlegir og létu ekki tölur hafa áhrif á sig, þá væri þetta ekkert vandamál. Gallinn er hins vegar sá, að flestir spilarar hugsa einmitt á þeim nótum, enda bjóða flest kerfi upp á slíka misnotkun, ekkert kerfi þó jafn mikið og D&D. Auk þess er...

Re: Spellfire:D

í Spunaspil fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Shit, hvað ég er þá gamall, því ég safnaði þessu á sínum tíma.

Re: Skráning er hafin!!!

í Spunaspil fyrir 20 árum
Jæja, þá er mótið næstu helgi og gott sem hvert sæti skipað. Mér sýnist þetta stefna í stórgott mót!

Re: Skráning er hafin!!!

í Spunaspil fyrir 20 árum, 1 mánuði
Ennþá eru nokkur sæti laus: Fantasy tímabil - 10 sæti, Earthdawn 5, Exalted 1, Epic 1, L5R 2 Horror tímabil - 7 sæti, Palladium 3, Ravenloft 4 Sci-fi tímabil - 13 sæti, Adventure 5, M&M 2, Shadowrun 5 Sem sagt, 3 borð laus og örfá sæti hér og þar.

Re: Skráning er hafin!!!

í Spunaspil fyrir 20 árum, 1 mánuði
ATH! ATH! Aðeins örfá sæti laus á stóra mótinu. Mörg borð orðin full og til að mynda eru aðeins 7-8 sæti laus á fantasíu tímabilinu og svipað á horror. Aðeins fleiri á sci-fi/modern tímabilinu. Ég hvet alla til að drífa sig niður í Nexus og ganga frá skráningu sem allra fyrst. Þeir sem hafa verið að trassa skráninguna geta ekki gengið út frá því að það sé laust sæti á þeim borðum sem þeir hafa mestan áhuga á.

Re: Mótið

í Spunaspil fyrir 20 árum, 1 mánuði
Ætli það ekki! Svona í ljósi þess að maður skipulagði það held ég að annað væri pínu furðulegt.

Re: Mótið

í Spunaspil fyrir 20 árum, 1 mánuði
Held að flestir stjórnendur taki við 16 ára spilara.

Re: Skráning er hafin!!!

í Spunaspil fyrir 20 árum, 1 mánuði
Skráning gengur framar vonum. Tvö borð eru nú þegar fullbókuð og eru nokkuð mörg þar sem aðeins er eitt eða tvö sæti laus. Ég hvet alla spunaspilara til að drífa sig niður í Nexus til að skrá sig, áður en það verður of seint!

Re: Skráning er hafin!!!

í Spunaspil fyrir 20 árum, 1 mánuði
Það er nú það…kannski af því að enginn býðst til að stjórna því.

Re: Skráning er hafin!!!

í Spunaspil fyrir 20 árum, 1 mánuði
Ja…þetta fer nú fram í félagsmiðstöð og okkur er uppálagt að vera með frekar stífa stefnu hvað þetta varðar. Annars er ekker mál að bregða sér út fyrir lóðina og kveikja sér í einni….en bara gera það með samþykki stjórnanda eða í pásum. Þakka þér fyrir, Jónsi.

Re: Skráning er hafin!!!

í Spunaspil fyrir 20 árum, 1 mánuði
Ekkert frekar. Ekki nema stjórnendur fari fram á það í lýsingu sinni á ævintýrunum.

Re: Skráning er hafin!!!

í Spunaspil fyrir 20 árum, 1 mánuði
Það hafa ekki neinir boðist til að stjórna því. Ekki flóknara en það.

Re: Skráning er hafin!!!

í Spunaspil fyrir 20 árum, 1 mánuði
Af gefnu tilefni: Það er takmarkað sætamagn á hverju tímabili, þannig að þeir sem eru harðákveðnir í að koma á mótið ættu að skrá sig sem allra fyrst.

Re: Skráning er hafin!!!

í Spunaspil fyrir 20 árum, 1 mánuði
Stjórnendur mæta með tilbúnar persónur. Leikmenn þurfa bara að taka með sér teninga, blýant, skrifblokk og nesti.

Re: Skráning er hafin!!!

í Spunaspil fyrir 20 árum, 1 mánuði
Flestir stjórnendur taka mjög vel í það. Stór hluti þess að mæta á mót er að prófa eitthvað nýtt.

Re: Sögumenn, spunameistarar, dýflissumeistarar

í Spunaspil fyrir 20 árum, 1 mánuði
Enn er verið að skrá stjórnendur þannig að þessi listi gæti lengst eitthvað. Skráning leikmanna hefst um mánaðarmótin.

Re: Sögumenn, spunameistarar, dýflissumeistarar

í Spunaspil fyrir 20 árum, 1 mánuði
Eftirfarandi kerfi og heimar verða í boði á spilamótinu: Grayhawk, Epic D&D 3.5 Exalted Legend of the 5 rings Dungeon & Dragons Vampire the Requiem Ravenloft, Epic D&D 3.5 Call of Cthulhu Shadowrun Adventure Mutants & Masterminds Cyberpunk 2020

Re: Sögumenn, spunameistarar, dýflissumeistarar

í Spunaspil fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Vantar 1 fantasíu stjórnanda og 2 horror stjórnendur.

Re: Spilamót 1. og 2. apríl

í Spunaspil fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Vantar 1 fantasíu stjórnanda og 2 horror stjórnendur.

Re: Sögumenn, spunameistarar, dýflissumeistarar

í Spunaspil fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Mjög góð….eins og best verður á kosið. Félagsmiðstöðin Tónabær verður staðurinn, mitt í Safamýrinni, rétt hjá Kringlunni og nokkuð miðsvæðist í Reykjavík.

Re: Sögumenn, spunameistarar, dýflissumeistarar

í Spunaspil fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Listinn verður birtur í Nexus þegar við erum komnir með nógu marga stjórnendur, en þar sem við erum gott sem komnir með það, er þess ekki langt að bíða.

Re: Sögumenn, spunameistarar, dýflissumeistarar

í Spunaspil fyrir 20 árum, 2 mánuðum
sem sagt….eftir hálfan mánuð hefst skráning spilara.

Re: Undirbúningur að stóru spilamóti hafinn

í Spunaspil fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Þá er búið að negla húsnæði og dagsetning mótsins komin á hreint. Mótið fer fram í Tónabæ, rétt hjá Kringlunni, helgina 1. og 2. apríl. Hægt verður að bjóða upp á gistingu, þar sem að dýnur eru á neðri hæð hússins. Ég geri ráð fyrir að spiluð verði 3 tímabil, það fyrsta fyrri part laugardags fram til kl. 22, annað frá kl. 23 á laugardagskvöld og fram undir sunnudagsmorgun, síðan hefst þriðja og síðasta tímabil kl. 11 á sunnudagsmorgun. Hvernig líst mannskapnum á þetta?

Re: Undirbúningur að stóru spilamóti hafinn

í Spunaspil fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Sjá á spunaspil.is

Re: Spunaspil.is Bilað?

í Spunaspil fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Farðu í tools, internet options, privacy/security og lækkaðu það niður í minnsta. Reyndu svo að logga þig inn.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok