Nú falla öll vötn til Dýrafjarðar, sagði Vésteinn Vésteinsson, er hann fékk peninginn sem Gísli bjó til í Danmörku senda í gyrðli einum. Þetta er það sem kallað er fleyg setning, en ég er ekki á því þetta sé málsháttur. Hugsanlega orðtak en það á frekar við eitthvað sem hægt er að skeyta inn í setningar, t.d. Bandaríkjamenn leika við hvern sinn fingur.