NASA var það fimmtudag og föstudag. Fimmtudagur. Hera - Trúbadoravæl, sem mér finnst leiðinlegt, hún spilaði nokkur coverlög, að ég held, sem voru öll afskaplega keimlík. Hera gat vel sungið og bandið var ágætt. Dead Sea Apple - Ágætt popp í rokkaðri kantinum, lögin voru helst til keimlík en fylgdu þó góðri formúlu Daysleeper - Ofboðslega leiðinlegir en spiluðu vel Land og Synir - Háskólapopp/rokk sedm minnti á leiðinlega útgáfu af Blink 182. Tilgerðarlegir og asnalegir Remy Zero - Hápunktur...