CSS sér um útlit síðunnar en HTML sér um innihaldið. Ef þessi skipting er í hávegum höfð er útlits breyting á síðu einungis gerð með því að skipta um CSS kóða, dæmi CSS Zen Garden. Annar kostur þess að skipta heimasíðugerð upp á þennan máta er að ef menn eru að skoða síðuna í úreltum vafra eða vafra sem einungis styður texta, dæmi: lófatölvur, kemur síðan fram á læsilegan máta ólíkt því sem gerast mundi ef hún væri öll full af <td> og <tr>töggum. Í því tilfelli þegar textavafri er notaður er...