Þar til bretar, frakkar og fleiri evrópuþjóðir gerðu “þessar þjóðir” að nýlendum sínum, þá gekk íbúum þar alveg hreint ágætlega að stjórna sér sjálfir. Þegar nýlenduherrarnir létu svo loks undan sjálfstæðiskröfum þessara þjóða, þá skiptu þeir löndunum upp á nýtt, t.d. var Jórdanía ekki til, heldur var hluti þess lands Palestína og annar hluti Írak og Kuweit, sem var bara lítið hérað í Írak, var gert að sjálfstæðu ríki til að bretar hefðu þar aðgang að olíu og herstöð. Allt í einu voru...