Jú, mikið rétt hjá þér, þetta er svona bókstafleg enskun á Þórunn; smá einkahúmor hjá mér og mínum vinkonum. Það má náttúrulega rífast endalaust um það hvað sé þjóð og hvað ekki. Ég held að arabahugtakið sé samt of flókið til að setja í annaðhvort þjóðarflokkinn eða ekki-þjóðarflokkinn. Mér skilst, á þeim aröbum sem ég þekki, að þeir telji sig í raun ekki vera þjóð, heldur nokkurskonar þjóðflokk eða bara hóp af fólki, sem allir eiga rætur sínar að rekja til arabíuskagans. Veit nú ekki hvaða...