Ég tek það fram að ég á það sjálfur til að stafsetja vitlaust og nota orð asnalega! En að lesa póstana hérna á Huga er hreinn viðbjóður! Önnur eins smákrakka-skrif, hálfvitatilsvör og nauðgun á tungumálinu á sér enga hliðstæðu í heiminum! Meðferðin á íslenskunni er þó misslæm, og greinilegt að krakkar í dag eru gjörsamlega ófærir um að hripa niður fáein orð án þess að limlesta og kvelja móðurmálið ófyrirgefanlega, á meðan póstar á sumum sviðum Huga eru ljómandi vel skrifaðir, en þar tel ég að um örlítið eldri einstalkinga sé að ræða. Þá er ég ekki að tala um slanguryrði og þá hefð að skrifa orðin eins og þau eru borin fram, heldur stókostlega vitlaust smíðaðar setningar, misskilin orð og svo ekki sé talað um fávita innihald setninganna margra hverra, þar sem iðulega er greinilegt að fólk hefur ekki staldrað við til að lesa greinarnar/korkana sem það er rembast við að svara! Ullabjakk!

Hér kunna að leynast einhverjar villur, og biðst ég þá velvirðingar á því :)