Sælir veri þátttakendur í Arena,

Mig langaði að taka saman smá lista yfir þá charactera sem hafa verið spilaðir í Arena hérna á Huga. Hugmyndin er að allir fái betri yfirsýn yfir þá bardagamenn sem etja hér kappi, sjái hverjir eru á svipuðu leveli og þeirra eigin persóna og rekist e.t.v. á spennandi mótherja. Einnig sjáum við betur stærð þessa samfélags, ég held að það gæti verið gaman að hafa þetta samantekið á einum stað.

Ég vil biðja hvern og einn sem tekið hefur þátt í Arena, og er með persónu sem hann ætlar að halda áfram með, að tilgreina nafn hennar, class og level. Ég mun síðan taka þetta saman þegar (vonandi) allir hafa svarað. E.t.v. væri gaman að taka einnig fram fjölda sigra og fjölda ósigra (eða kannski finnst mér það bara gaman!).

Ég byrja:
Kurdor: Krod-Nojr Krivnetos, 5. level (Mnk 1/Bbn 2/Ftr 2), 4 sigrar og 0 ósigrar.