Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Íslenskt OKUR á vélbúnaði

í Vélbúnaður fyrir 25 árum, 6 mánuðum
Mig langar að benda fólki á að virðisaukaskattur er 24,1% á öllum vörum á Íslandi nema áfengi og tóbaki, þar sem hann er næstum því helmingi lægri, tollagjöld og innfluttningsgjöld annarskonar eru ekki greidd í prósentum heldur fer það eftir stærð og þyngd sendingar. Algengt influttningsgjald er u.þ.b. 5000kr fyrir utan tolla… Tollarnir reiknast á mismunandi hátt eftir því hvernig sendingin er skráð á pappírana, en ódýrast er að skrá tölvuhluti sem varahluti, því þá lækka tollarnir um...

Re: Re: Cordless mouseman.

í Vélbúnaður fyrir 25 árum, 6 mánuðum
Það er engan veginn hægt að kenna BT um þess háttar vandamál því, ja, ekki eru það þeir sem framleiða þetta

Re: Trúið þið á drauga???

í Dulspeki fyrir 25 árum, 6 mánuðum
Ég hef orðið var við ferðir framliðinna…. takið eftir að ég nota orðið framliðnir ekki draugar, mér finnst það ekki viðeigandi, það fer allt eftir hvort viðkomandi er góður eða slæmur, ég hef þó aldrei séð framliðna en veit um nokkra sem hafa séð þá og veit meira að segja um tvö tilfelli þar sem lífi sama aðilans var tvisvar bjargað og enginn jarðneskur aðili nálægt sem gæti af hafa bjargað honum, þó vou tvö vitni sem sáu þessi tilfelli og vilja allir halda því fram að þar hafi eitthvað...

Re: Pæling um jólasveininn

í Dulspeki fyrir 25 árum, 6 mánuðum
Tilhugsunin um jólasveininn er sennilega ein sú allra besta minning sem ég á síðan ég var smábarn, mig minnir að ég hafi verið um 6 ára þegar ég áttaði mig á því hver í raun og veru setti í skóinn hjá mér en þó hélt ég áfram að setja skóinn í gluggann, ég held ég hafi verið 10ára þegar ég setti skóinn síðast í gluggann, en það er ekkert sem gleður mig jafn mikið og að sjá ánægju svipinn á flestum börnunum á Aðfangadag, þegar ég ásamt mörgum öðrum göngum á milli húsa í mínum heimabæ, klæddir...

Re: TAXI 2

í Kvikmyndir fyrir 25 árum, 6 mánuðum
Myndin er náttúrulega snilld út í gegn, ég held samt að það atriði sem gerði útslagið hafi verið þegar tugir lögreglubíla rústuðust, það er með skemmtilegustu atriðum sem ég hef séð í nokkurri kvikmynd

Re: Litla ljóðið mitt... :)

í Rómantík fyrir 25 árum, 6 mánuðum
Með því besta sem ég hef séð

Re: LEIÐINLEGT!!!!!

í Húmor fyrir 25 árum, 6 mánuðum
Ég er þokkalega sammála þessu, það er allt í lagi að leyfa brandara á Ensku, svo lengi sem þeir eru stuttir,…….. Eflum Íslenska tungu :)

Re: Futurama

í Teiknimyndir fyrir 25 árum, 6 mánuðum
Futurama eru allveg BRILLIANT þættir og ég ætla rétt að vona að RÚV missi ekki frá sér sýningarréttinn á þeim, en hvað varðar Simpsons þá ætti náttúrulega að sýna þá á stöð sem allir landsmenn geta séð en ekki bara þeir sem borga áskrift að Íslensku Mafíunni…..eins og er sennilega best að kalla Íslenska Útvarpsfélagið´.

Re: Stöð 2 fer illa með Simpsons

í Teiknimyndir fyrir 25 árum, 6 mánuðum
Samkvæmt Íslenskum sjónvarps og útvarpslögum er ekki heimilt að rjúfa dagskrárliði sjónvarps nema eftirfarandi sé framfylgt s.b.r. 17gr. útvarpsréttarlaga a. Útsendingu dagskrárliða sem samsettir eru úr sjálfstæðum þáttum, íþróttadagskrár eða sambærilega dagskrárliði, sem svipaðir eru að uppbyggingu, er heimilt að rjúfa með auglýsingatíma og fjarsöluinnskotum á þann veg að auglýsingum og fjarsöluinnskotum sé aðeins skotið inn á milli þátta eða í hléum. b. Útsendingu kvikmynda, þar á meðal...

Re: Re: Hverjir eru verstir í BRANSANUM?!?!?

í Vélbúnaður fyrir 25 árum, 6 mánuðum
Þegar skjákort bilar, dugir oftast, reyndar þó ekki alltaf, að byrja á því að innstalla driverinn aftur, ef það virkar ekki virkar oft að slökkva á tölvunni, taka skjákortið úr, kveikja á henni aftur, slökkva, setja kortið í og kveikja þá ætti hún í flestum tilvikum að virka

Re: Re: Furðulegt verðlag á íslndi.

í Vélbúnaður fyrir 25 árum, 6 mánuðum
Það er allveg ótrúlegt hvað er hægt að ná tollum mikið niður með því að flytja inn sjálfur og skrá sem varahluti í innflutningi, maður beytir sömu brögðum í tölvuinnflutningi og bílainnflutningi

Re: Hakkinen hungrar í sigur í Malasíu á sunnudaginn

í Formúla 1 fyrir 25 árum, 6 mánuðum
Häkkinen getur alltaf látið sig dreyma…….ZZZZzzzzZZZZZzzzzZZZZZzzzz

Re: Re: Það slær held ég enginn Tölvusmiðjunni við!!!

í Vélbúnaður fyrir 25 árum, 6 mánuðum
Maður reynir ekki að gera neitt sjálfur, nema maður viti nokkurn veginn hvað maður er að gera, þetta eru ekkert ódýr tæki sem maður er með í höndunum

Re: Re: Það slær held ég enginn Tölvusmiðjunni við!!!

í Vélbúnaður fyrir 25 árum, 6 mánuðum
Það breytir engu hvort ég segi þetta núna, eða ég hefði sagt það þá, því ég veit að þjónustan hjá þeim er ekki betri í dag en hún var fyrir 2 árum síðan, hún er sennilega heldur verri ef eitthvað er. T.D. ef maður kaupir nýja tölvu hjá þeim og biður þá um að setja skrifara í hana, þá lengist biðtíminn eftir tölvunni um 4 - 5 vikur, það finnst mér nú heldur langur tími til að setja einn fuckings skrifara í tölvu.

Re: Re: Það slær held ég enginn Tölvusmiðjunni við!!!

í Vélbúnaður fyrir 25 árum, 6 mánuðum
Hey, common, sá sem vann á verkstæðinu hjá þeim þegar þetta var, var menntaður tölvunarfræðingur og rafeindavirki, þannig að það segir sig sjálft að maður býst við því að maður fái hlutina í lagi úr höndunum á þeim, þó svo ég hafi lært á mistökunum og geri þetta ekki aftur, enda þarf líka að vera eitthvað virkilega mikið að tölvunni nú í dag til að ég geri ekki við það sjálfu

Re: Lykla-Pétur og bílarnir

í Húmor fyrir 25 árum, 7 mánuðum
Lödur eru ágætis bílar og eru ekkert verri en margir aðrir, þó það sé kannski ekki hægt að segja að þær séu fallegar vegna þess að ´þær eru allveg afskaplega ljótar, en það er ekkert verra að keyra þær fyrir vikið

Re: Re: Varðandi lit á Formúlu 1 síðu!!!

í Formúla 1 fyrir 25 árum, 7 mánuðum
og hafa þá kannski mynd af Pink Panther líka
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok