Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Re: Re: Re: Re: Re: Re: Skattar

í Stjórnmál fyrir 25 árum, 3 mánuðum
Egilsstaðir verða ekki raunhæfur möguleiki til búsetu eftir 10-15 ár, það er sífellt verið að byggja þar og eftir 5 - 10 ár verður bærinn búinn að sprengja utan af sér allt byggingaland….

Re: Re: Re: Re: Re: Re: Re: Re:

í Stjórnmál fyrir 25 árum, 3 mánuðum
Hvernig færðu það út að það sé stórt skref afturábak??? Eins og ég sagði áðan Eyjabakkar gætu orðið ferðamannaparadís ef að virkjun yrði, svæðið yrði mikið fallegra ásamt því að það yrði margfallt gróðurvænlegra, þar að auki er ekki hægt að gera mikið meira útá ferðaþjónustu fyrir austan eins og staðan er í dag, því eins og er, er mesti ferðamannastraumurinn í gegnum Keflavík, á sumrin koma á bilinu 5 - 7000 manns víða að úr Evrópu með Norrönu til Seyðisfjarðar, en árið 2003 á ný ferja að...

Re: Re: Re: Re: Re: Skattar

í Stjórnmál fyrir 25 árum, 3 mánuðum
Taka tillit til þess!!! TAKA TILLIT TIL ÞESS!!! Það er náttúrulega eins og það er, en ég hef engan áhuga á að taka tillit til þess að fólk á höfuðborgarsvæðinu sé með í sumum tilvikum hátt í helmingi hærri laun en fólk í sama starfi útá landsbyggðinni… Það er fáránlegt, en það líður ekki á löngu þar til þróunin snýst við, og launafjárhæðirnar jafnast út, og landsbyggðarflóttinn umbyltir sér yfir í höfuðborgarflótta… Það sem bæjarfélögin útá landi vantar er fólk með hugmyndir, en vandamálið...

Re: Re: Re: Re: Re: Re:

í Stjórnmál fyrir 25 árum, 3 mánuðum
Ef þú hefðir lesið aðeins meira en bara nokkur neðstu svörin, hefðiru séð þegar ég sagði frá því að gerð hefði verið könnun meðal ungmenna sem hafa flutt frá Austurlandi, og mikill meirihluti þeirra gætu vel hugsað sér að koma austur aftur ef álverið verður að veruleika, þá vil ég aftur benda ykkur eindregið á að líta á heimasíðu Reyðaráls http://www.reydaral.is Upphaflega var líka talað um að virkja einn minnst sótta stað á hálendinu, en þangað höfðu ekki nema um 5% þjóðarinnar komið og um...

Re: Re: Re: Re:

í Stjórnmál fyrir 25 árum, 3 mánuðum
Bentu mér á einhverja eina tegund aðra sem getur látið rúmlega 400 manns fá atvinnu á svo skömmum tíma og álver myndi gera…

Re: Re: Re: Re: Re: Áfengis aldurinn

í Djammið fyrir 25 árum, 3 mánuðum
Maður byrjar á því að fá ökuskírteini til reynslu í tvö ár eftir það færðu skírteini sem gildir til sjötugs

Re: Re: Re: Skattar

í Stjórnmál fyrir 25 árum, 3 mánuðum
Í mínum heimabæ fyrir austan, fækkaði íbúum um 30 á síðasta ári… Reyndar fóru ekki allir til höfuðborgarsvæðisins, en meirihlutinn þó… og ég veit að mesti partur þess fólks sem fór til Reykjavíkur, fór ekki þangað af því að það vildi fara þangað… Þvert á móti, það fór af því það neyddist til þess af fjárhagsástæðum, flestir af þessu fólki hafa verið að vinna stundum hátt í 20 tíma á sólahring til að halda sinni fjölskyldu uppi, en samt gekk það ekki upp, þrátt fyrir að ekki sé nema um 800...

Re: Re: Re: Re: Re: Re: Skattar

í Stjórnmál fyrir 25 árum, 3 mánuðum
Mikið rétt, það eru ein jarðgöng á Austurlandi og þau voru gerð fyrir u.þ.b. 20 árum og það eru göngin í gegnum Oddskarð, það er milli Eskifjarðar og Neskaupstaðar, en málið með þau jarðgöng er að þau eru boruð í gegnum fjallstindinn þannig að maður þarf að keyra yfir næstum því alla gömlu heiðina áður en maður kemur að göngunum þannig að þau göng styttu leiðina lítið… Þannig hugsar ríkisstjórnin og hefur alltaf hugsað… Já, ég er líka sammála Davíð Þór að Hellisheiðin sé hluti sem þarf að...

Re: Re: Re: Re: Skattar

í Stjórnmál fyrir 25 árum, 3 mánuðum
Ég er sammála þessu, það er engin ástæða til að setja fleira jarðgöng á því svæði, málið er bara að samgönguráðherrar síðustu tveggja til þriggja ríkisstjórna hafa lofað uppí ermina á sér hvað þetta varðar, en fyrrverandi landbúnaðarráðherra hann náði á einhvern óskiljanlegan hátt að kveða sig með sínum asnalegu stökum útur öllum vandræðum

Re: Virkjun á Eyjabökkum?!?

í Stjórnmál fyrir 25 árum, 3 mánuðum
Mig langar líka til að benda fólki á grein á heimasíðu Reyðaráls www.reydaral.is þar sem sagt er frá atvinnumöguleikum í fyrirtækinu þegar af því verður, en við það að koma Reyðaráli í gang skapast 414 ný störf

Re: Re: Skattar

í Stjórnmál fyrir 25 árum, 3 mánuðum
Troða álverum og jarðgöngum hér og þar???? Til að byggð haldist í mörgum eða flestum sjávarplássum á landinu, neyðumst við til að planta jarðgöngum “hér og þar”, það eru margir fjallveganna sem bjóða ekki upp á endurbótamöguleika nema fyrir fjárhæðir sem eru svo gígantískar að það borgar sig að gera göng í staðin, svo ekki sé minnst líka á tímann sem sparast við að keyra í gegnum göngin frekar en yfir fjöllin. Það er að sjálfsögðu ekki allstaðar sem er ástæða til að setja jarðgöng, en þó...

Re: Re: Skattar

í Stjórnmál fyrir 25 árum, 3 mánuðum
Ize!!! Ef þú ert með einhverja hugmynd um það hvernig landsbyggðarfólk getur hækkað tekjur sínar þá væri það vel þegið, einu aðilarnir sem eru sæmilega launaðir hvort sem er útá landi eða á höfuðborgar svæðinu eru tölvufræðingar og kennar, fiskverkafólk er reyndar í lang flestum tilvikum mjög vel launað, en vandamálið á því sviði er að stór hluti Íslendinga nú til dags eru orðnir svo snobbaðir að þeir geta ekki hugsað sér að vinna í fiski… En fiskverkun hefur frá örófi alda verið ein...

Re: Re:

í Stjórnmál fyrir 25 árum, 3 mánuðum
Vegna þess að það var stofnað sérstaklega til að berjast fyrir því að reist yrði álver á Reyðarfirði og virkjun á Eyjabökkum, þeirra baráttumálefni hefur aldrei verið á öðru sviði…

Re: Re: Skattar

í Stjórnmál fyrir 25 árum, 3 mánuðum
Eins og er, er ekki nema um eina opinbera stofnun sem höfuðborgarbúar þurfa sumir hverjir að leita til sem er í nokkuri fjarlægð frá borginni, það er enga stund t.d. verið að skjótast uppá skaga til að fara í Landmælingar og ekki þurfa Höfuðborgarbúar að leita til Rarik, það gerir að verkum að eina stofnunin er Húsnæðismálastofnun

Re: Re: Skattar

í Stjórnmál fyrir 25 árum, 3 mánuðum
Það er ekki hægt að líkja því að saman hvort skattar eru mismunandi eftir búsetu eða bætur tekjutengdar, það er komið fram í dagsljósið, reyndar fyrir margt löngu síðan að meðaltals tekjur fólks á höfuðborgarsvæðinu eru mun hærri en meðal tekjur fólks á landsbyggðinni, vegna þess að fyrirtæki á Reykjavíkursvæðinu njóta mikilla ríkisstyrkja á meðan fyrirtækin á landsbyggðinni njóta nánast engra styrkja, sem þýðir að fyrirtæki í Reykjavík geta leyft sér að greiða starfsfólki hærri laun en...

Re: Re: Re: Re: Re: Re: Virkjun á Eyjabökkum?!?

í Stjórnmál fyrir 25 árum, 3 mánuðum
já svo ég svari þér nú líka aftur flanger, þetta með opinberu stofnanirnar… Það hefur aldrei verið í umræðunni að flytja einhverjar opinberar stofnanir til austurlands, og þetta með að reisa eitt stk. álver er nú bara ansi mikil fjölbreytni miðað við það sem er í boði núna, og það eru líka fjölmörg mismunandi störf í álverum… bara svo þú vitir það

Re: Re: Re: Virkjun á Eyjabökkum?!?

í Stjórnmál fyrir 25 árum, 3 mánuðum
Ég sé það allaveganna að ég er ekki sá eini sem er á þessari skoðun

Re: Re: Re: Re: Aðsvif Ingibjargar

í Stjórnmál fyrir 25 árum, 3 mánuðum
Ég efast um að þú hefðir brugðist öðruvísi við sjálf(ur)

Re: Re: Skattar

í Stjórnmál fyrir 25 árum, 3 mánuðum
Ástæðan fyrir því að mér finnst eðlilegt að íbúar á landsbyggðinni borgi lægri skatta er nákvæmlega sú sama og mAlkAv kom inná í greininni, Höfuðborgarbúar geta sótt alla þá þjónustu sem þeir þurfa á að halda í næsta nágrenni, en úta landsbyggðinni kemur jafnvel oftar en ekki fyrir að fólkið þarf að flakka landshlutanna á milli til að fá nákvæmlega sömu þjónustu.

Re: Re: Re: Re: Skattar

í Stjórnmál fyrir 25 árum, 3 mánuðum
Mér finnst a.m.k. tillögurnar sem komu fram hjá mAlkAv sanngjarnari og raunhæfari en skattamálin eru í dag

Re: Re: Re: Re: Virkjun á Eyjabökkum?!?

í Stjórnmál fyrir 25 árum, 3 mánuðum
Skrifa einhverjar skýrslur og dót … hmmm, skemmtilega orðað hjá þér, en ég held þú ættir að kynna þér þessi mál betur því að það sem þú kallar að skrifa skýrslur og dót, er reyndar upphafið að öllu sem tengist atvinnulífi … Ég þekki frekar mikið til atvinnurekstrar þar sem fjölmargir atvinnurekendur eru í minni fjölskyldu og þetta eru endalausir pappírar allan daginn, en þó er mest á tímanum áður fyrirtækin komast af stað…

Re: Davíð og fleiri mafíósar í ríkisstjórninni..

í Stjórnmál fyrir 25 árum, 3 mánuðum
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Össur stendur sig vel á meðan hann er í stjórnarandstöðu, en hann aftur á móti gerði fátt á meðan hann sat í Ríkisstjórn, ég myndi samt vilja sjá nýja Ríkisstjórn Framsóknarflokks og Vinstri- grænna, þá væri góður hópur kominn í ríkisstjórn, og sá hópur að sjálfsögðu leiddur af Halldór Ásgrímssyni

Re: Re: Skattar

í Stjórnmál fyrir 25 árum, 3 mánuðum
thew ertu semsagt að segja þá að skattakerfið í dag sé sangjarnt???

Re: Öryrkjar og Garðar Sverrisson

í Stjórnmál fyrir 25 árum, 3 mánuðum
Það er mikið rétt að það var dómur Hæstaréttar að þetta væri ekki brot á stjórnarskránni, en ég álít sem svo að Ríkisstjórnin sé að gera illt verra með þessum “STÆLUM”, það er nú reyndar ekki hægt að búast við því að Forseti okkar Hr. Ólafur Ragnar Grímsson neiti að skrifa undir frumvarpið eins og öryrkjar hafa farið fram á, þar sem hann myndi leggja forsetaembættið í mikla hættu með því en aftur á móti vona ég fyrir hönd öryrkja að Hæstiréttur synji ríkinu, því það er hreint og beint...

Re: Re: Virkjun á Eyjabökkum?!?

í Stjórnmál fyrir 25 árum, 3 mánuðum
Þá spyr ég bara á móti… viljum við ekki halda fólkinu í landinu??? Til þess að það gangi upp verðum við hafa næga atvinnu, til að atvinnan sé nægileg þarf að koma nýrri og fjölbreyttari atvinnumöguleikum úta landsbyggðina. Það líður að því að höfuðborgarsvæðið hætti að taka við íbúum vegna plássleysis, útá landsbyggðinni er bæði næganlegt byggingaland sem og hellingur af húsum sem standa auð og liggja undir skemmdum ef ekkert verður að gert… Ég skyldi þig ekki almennilega hvort þú vildir...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok