Já :) Æj… það er samt svo erfitt að finna einhvern, hvernig sem það er. Ef að ég finn einhvern gaur sem að mér líst vel á (ekki útlitslega btw) þá er hann á föstu. EÐA að hann einfaldlega vill mig ekki þó að það væri hægt að lesa fullt af merkjum um að hann hafi áhuga en svo er víst að hann hefur engan áhuga :(
Haaa? Ég sagði aldrei að ég vildi “massaðan og tan-gæja”. Ég sagði að já, ég væri alveg til í einhvern svoleiðis. Ég hef alveg opin huga. Ég var að reyna að útskýra að ég hef verið “alin upp” (ekki af mömmu og pabba samt) þannig að þeir strákar séu eftirsóttaverðir.
Hmm… Ég ákvað það að senda aldrei mynd af mér inná huga. Ég get samt lýst mér :) Nokkuð há, íþróttalega vaxin, dökkhærð, þykkar varir, lítil augu, furðulegt nef. U?
Nei. En ég get alveg viðurkennt það að ég hef verið hrifin af sama stráknum síðan í 6. bekk og hann var alger lúði þá. Og er soldið ennþá. En sama hvernig hann myndi klæða sig, þá myndi ég samt alveg ennþá vera hrifin af honum :)
Uhm… það skiptir mig engu máli hvernig fötum þeir klæðast. Útlitið er ekki það mikilvægt, en það skiptir samt alveg máli að hann hugsi um útlitið. (Sem dæmi, smá gel)
Haha :') Ég ýmindaði mér allan tímann þegar ég var að lesa þennan kork og svörin að Rubik's cub væri Rummy cub :'D Ég fattaði ekki að þið væruð að tala um lituðu kubbana fyrr en ég var komin alla leið niður. Ég var farin að hugsa hvað MH-ingar væru yndislega spes…
Randalínur, mömmukossar og SÖRUR!!! Ég býð allt árið eftir sörunum hennar mömmu :P Sjúklega gott :) Ég var ekki alin upp við lakkrístoppa, nýbúin að kynnast því. En þeir eru samt alveg sjúklega góðir. Engar jólasmákökur fyrir mér samt :)
Úff, man ekki einu sinni eftir þeim öllum :/ Allaveganna Coldplay - Yellow Queen - Bohemian Rhapsody Eagles - Hotel California Lady GaGa - Paparazzi Robbie Williams - Angels Elton John - Your song Michael Jackson - Billy Jean Já, svona það sem ég man í augnablikinu :)
Og þú situr og skrifar á huga hvað þú ert upptekinn. :/ Ef ég væri þú, myndi ég frekar vera að koma eitthverju í verk. P.S. Ég veit að ég er að svara soldið seint, mig langaði bara ótrúlega mikið að segja þetta. (Alls ekki skítkast. Á allaveganna ekki að vera það :S)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..