Mér finnst eiginlega ekkert varið í þetta lag, eitthvað svo… júróvisionlegt. Evrópubúar vilja eitthvað frumlegt, nema við sem búum hérna efst, við viljum alltaf sömu melódíuna (sem var eins og fyrir 20 árum.) Sjáum t.d. Svíþjóð í fyrra, sem var með abba - 33 árum seinna. Þetta er nú alveg kolruglað lið. Ég hefði viljað senda wiggle wiggle, Ragnheiði Gröndal, Baggalút eða jafnvel Ho, Ho, Ho… (Í fyrstu útgáfunni að sjálfsögðu.)