Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

srjong
srjong Notandi frá fornöld 104 stig

GPS tæki og linux (3 álit)

í Linux fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Fyrir þá sem ekki vilja villast eða vinna við einhverjar landmælingar; Til eru ýmis GPS forrit fyrir Linux, sjálfur nota ég aðallega tvö, gd2 sem er einfalt console forrit sem talar við Garmin GPS tæki og hleður upplýsingum úr og í tækin gegnum kapal. Hitt forritið er Gpsman, skrifað af Miguel Filgueras sem vinnur við háskólann í Porto, Portúgal. Þetta forrit er TCL/TK GUI forrit og getur unnið á rauntíma, þ.e. birt staðsetnigu á skjá meðan maður er á hreyfingu.Svo er kíka hægt að setja...

Nýr á elliheimilinu (0 álit)

í Húmor fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Gamall maður flutti inn á elliheimili og vildi sýna hver væri nýji haninn á haugnum. Hann setti stórann miða á dyrnar hjá sér sem stóð á; í rúminu: 2000kr á gólfinu: 200kr Fljótlega var bankað á dyrnar og gömul kona stendur þar með 2000 kall í hendinni. Eitt skipti í rúminu? spurði kallinn Nei, sagði sú gamla, ég vil tíu sinnum á gólfinu!

Þyngd á jeppum (15 álit)

í Jeppar fyrir 23 árum
Greinin um súkkurnar hreyfði soldið við mér, það er oft einblínt ansi mikið á dekkjastærð og vélarafl en of lítið á þyngdina. Súkkurnar eru auðvitað fisléttar og þannig lagað í sérflokki, enda fáir aðrir jeppar jafn léttir og jafn gott að breyta. Næsti flokkur fyrir ofan samanstendur svo af Hilux, BroncoII, Ranger og fleiri pickup-ar enda allir um 1700 kg. Eftir það er maður komin upp í 2200kg flokkinn þar sem lítið þýðir að fara út í neitt sem heitir lausasnjór nema á 38" eða stærra. Og í...

Nýr rússajeppi (10 álit)

í Jeppar fyrir 23 árum, 1 mánuði
UAZ verksmiðjurnar eru að koma með nýjan á markaðin og LADA umboðið hyggst setja hann á markað hérlendis. Kíkið á :http://staff-www.uni-marburg.de/~hassec/3160k.html Þessi nýja týpa er með heilum öxlum og gormun að framan og 2,5 eða 3ja lítra bensínvél og 2.5 dísel erfánleg (sama og í Jeep að ég held). Þyngdin er aðeins 1850 kg. og þar sem hann er á heilum SPICER öxlum hlýtur hann að vera spennandi fyrir upphækkanir.

Flott forrit fyrir alvöru flakkara (2 álit)

í Linux fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Vildi vekja athygli á flottu forriti fyrir Linux (ogaönnur *nix kerfi). Forritið getur tekið við og sent punkta, leiðir og slóðir til og frá Garmin GPS tækjum og unnið á rauntíma, (real time tracking) bæði með garmin tækjum og ÖLLUM GPS tækjum sem styðja NMEA 0183 staðalin (eða var það 0182?) Það getur notað skannaðar myndir í bakgrunn til að sýna punkta leiðir o.fl. á korti og hjá mér tekst vel upp með UTM kort. Því miður er ekki ennþá stuðningur við íslensku Atlasblöðin en ég er að bögga...

9" Ford reverse cut LOKSINS!! (3 álit)

í Jeppar fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Tékkið á þessu!! http://www.outdoorwire.com/4x4/jeep/tech/axle/currie9inch/ Currie Enterprises eru alltaf samir við sig, Og þetta er það alsniðugasta frá þeim! Eini gallinn við Ford 9" hásinguna er hvað pinioninn situr lágt og þetta reddar því! Ég er þegar búinn að senda þeim E-mail og biðja um nánari upplýsingar en sem stendur er þetta víst ennþá á tilraunastigi.

Endurnýting (recycling) Bummer (6 álit)

í Jeppar fyrir 23 árum, 6 mánuðum
tékkið á þessu; www.bummer-kit.com Þetta er eitursnjöll hönnun en ansi dýrt sett enþá (6000$). En Þetta gerir mönnum kleift að endurnýta grindur á eldri pickup bílum svo og stóra Blazernum og Suburban. Fyrir utan verðið er líka bara hægt að fá þetta með blæju, en svo er auðvitað alltaf hægt að raða saman hvaða krami sem maður vill (nóg pláss undir húddinu) og (næstum) hvaða fjöðrun sem e
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok