Ég er núna búinn að hlusta á alla plötuna tvisvar og ég verð að segja að hún er nokkuð góð. Ég ætla ekki að segja snilld vegna þess að ég veit að Radiohead getur betur. Ég fékk líka þessa “special edition” útgáfu og verð að segja að hún stóð ekki undir væntingum. Til dæmis stendur hvergi hvað lögin heita. Samt er þetta fín plata og mér finnst hún vera betri en Kid A en samt vera aðeins á eftir OK Computer og The Bends.