Fréttir frá Englandi núna í morgun segja að Teddy Sheringham sé að öllum líkindum á leið frá Manchester United til Tottenham Hotspur. Tottenham þurfi ekki að borga neitt fyrir kappann því samningur hans við United rennur út núna í vor. Teddy, sem er 35 ára, er ætlað að ná hinu bestu úr Sergei Rebrov, sem hefur gengið ílla að fóta sig í Englandi. Líklegt er að Sheringham skrifi undir tveggja ára samning og fái 35,000 pund í vikulaun. Einnig er mjög líklegt að Tottenham muni núna á vordögum kaupa Petit og Guardiola frá Barcelona.