Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

solanovitz
solanovitz Notandi frá fornöld 130 stig

Re: er maður sikk eða er mar klikk???

í Netið fyrir 25 árum, 3 mánuðum
yepps… ég er greinilega svona ömurleg… … oh well, best að senda þetta bara á mail-grúppuna mína þó að það sé greinilega sikk/klikk, ég ræð bara ekki við mig.

Re: Portrait

í Smásögur fyrir 25 árum, 3 mánuðum
Ég hef nú ekki mikið verið að lesa þessar smásögur sem eru hér á huga en ég komst ekki hjá því að taka eftir þessari og síðustu sögu sem sami höfundur skrifaði… hvað er eiginlega að gerast í þessum sögum? Er þetta einhver frásagnartækni eða þema sem ég er að missa af? Eða er bara verið að næla sér í stig með því að skrifa langa grein um næstum því ekki neitt?

Re: Re: Meira um lögleiðingu fíkniefna

í Deiglan fyrir 25 árum, 4 mánuðum
Fólk segir að þetta sé val. En er þetta val sem við viljum bjóða fólki upp á. Viljum við virkilega vera þekkt sem þjóðin sem leyfir þegnum sínum að dópa sig upp án þess að neitt sé gert til að sporna við því. Nóg er nú kvartað yfir því hvað það vantar mikið fé til að hjálpa þeim hópum sem vinna að forvarnarstarfi vegna eiturlyfjanotkunar… ég efast um að þessir hópar muni hverfa þó lögleiðing eigi sér stað… vilja þeir þá ekki bara meiri pening til að vinna gegn eiturlyfjanotkun, hvar er þá gróðinn??

Re: Hairy Hrafn Gunnarsson

í Deiglan fyrir 25 árum, 4 mánuðum
Ég er algerlega sammála þessu. Ég heyrði til dæmis fyndna sögu (veit ekki hvort hún sé sönn) um innflytjanda af Asísku bergi brotinn. Hann vildi gerast íslenskur ríkisborgari og þurfti því að breyta nafni sínu… þetta var stuttu eftir að lögin voru sett og varð hann auðvitað mjög reiður. Endaði með því að hann valdi sér nafnið Ljótur Bolli… bara svona til að sýna fram á fáránleikan á bakvið þessi lög.

Re: Re: Re: Re: Stalst þú BMW?

í Hugi fyrir 25 árum, 4 mánuðum
Hann fór einmitt ekki á bílnum bæinn. Hann var hjá vinum sínum og kom svo heim að skila bílnum. Svo fóru þau öll í bæinn. Þess vegna var hann enn með bíllyklana í vasanum. En það er gott að heyra að fólk sé enn það heilbrigt að því finnist þetta leiðinlegt. Ótrúlegt að fólki skuli detta í hug að gera svona.

Re: Re: Stalst þú BMW?

í Hugi fyrir 25 árum, 4 mánuðum
AFSAKIÐ - þessi saga sem ég sagði ykkur var ekki öll sagan, það var fullt af smáatriðum sem gerðist inn á milli sem styðja það fullkomlega að bróðir minn hafi ekki gert þetta sjálfur. AUk þess var hann ekki á fylleríi, hann lenti í bílslysi í sumar og má ekki drekka sig fullan. Hann var búinn með tvo bjóra og var með fullu viti. Bróðir minn er líka ekki lygari, hann getur ekki logið að mér og mun aldrei geta það. Hann er líka svo saklaus að honum myndi ekki detta það í hug. Auk þess elskar...

Re: Með þér en án þín!

í Rómantík fyrir 25 árum, 5 mánuðum
Sagði ekki einhver einu sinni : If you love someone, set him free. If he comes back he´s yours forever.If he doesn´t… then he never was. Ég held það sé alveg þess virði að láta á það reyna

Re: Re: Hmmm, ástfangin?

í Rómantík fyrir 25 árum, 5 mánuðum
ég er nokkurn veginn sammála spacey - ég held að ef maður elski einvern á þann hátt sem maður myndi elska makann sinn (ekki svona móðurást eða þannig) að þá sé maður ástfanginn. Þýðir orðið “ástfanginn” ekki að maður elski einhvern á þennan sérstaka hátt sem maður elskar maka sinn? Það er svo auðvitað hægt að elska fólk á annan hátt eins og ég elska foreldra mína, systkini, ömmu og afa osfrv. en ég segi samt ekki að ég sé “ástfangin” af þeim. Ég vona að allir skilji hvað það þýðir að vera...

Re: Re: Tæfur sem stela kærustum

í Rómantík fyrir 25 árum, 5 mánuðum
Já já, hún þekkir vinkonu mína meira að segja vel. Eins og ég sagði þá voru vinkona mín og kærastinn hennar góðir vinir löngu áður en þau byrjuðu saman. Þau voru sem sagt vinir þegar hann var með gömlu gellunni. Ég er ekki að segja að þær séu vinkonur en hún þekkir okkar vinahóp mjög vel og veit allt um okkar hagi. Þetta er bara mjög tíkarlegt af henni að koma svona fram við þau bæði

Re: Kæri Vafri

í Vefsíðugerð fyrir 25 árum, 5 mánuðum
Mér finnst fáránlegt að fólk vilji hafa úr einhverjum fjölda vafrara að velja. TIL HVERS? Það flækir málin um of. Maður getur aldrei vitað hvort maður sé að sjá síður eins og þær eiga í raun og veru að líta út. Hönnuðurinn var kannski einhver sjúkur sérvitringur sem er skítsama um alla Netscape notendur og hannaði síðuna bara fyrir IE notendur. Ég spyr HVERNIG eiga þeir notendur að vita að síðan er bara ljót af því að þeir eru að skoða hana í “röngum” vafrara? Samkeppni er oftast af hinu...

Re: Að læra Heimasíðugerð?????

í Netið fyrir 25 árum, 5 mánuðum
ég er sjálf í Margmiðlunarskólanum, nýja náminu sem er 900 kennslustundir. Jú ég get alveg viðurkennt að ég myndi ALDREI borga fyrir það að læra á Frontpage sem er mjög idiot-proof forrit og það sem er farið í á svona námskeiði er örugglega ekki mikið meira en meðal manneskja getur sjálf lært með því að kaupa sér kennslubók í bókasölu stúdenta eða eitthvað þannig… … EN það eru líka svo rosalega margir sem hafa áhuga á tölvum sem eru kannski ekki neitt mjög “tölvu-vænir” þe. fólk sem veit...

Re: Tarzan

í Börnin okkar fyrir 25 árum, 5 mánuðum
OK, mér finnst fíllin lang fyndnastur í þessari mynd. Kannski er ég biluð. Hann er bara svo vitlaus

Re: Chelsea - Leeds

í Knattspyrna fyrir 25 árum, 5 mánuðum
Poyet er nú samt alltaf jafn flottur ha! finnst ykkur ekki, hann getur alveg skorað mörk ef hann langar til þess. Hvernig er þetta er ekki til neinn íslenskur Chelsea klúbbur?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok