… að taka völdin?? Í gær var sagt frá því í fréttum að ungur maður, aðeins 22ja, hefði látist af áverkum sem hann hlaut þegar tveir guttar í kringum tvítugt réðust á hann að því er virðist tilefnislausu í miðbæ Reykjavíkur. Þetta gerðist auðvitað um helgi þegar fólk á að vera að “skemmta sér” niðrí miðbæ. Sumir virðast þó vera mættir í bæinn í öðrum erindagjörðum. Nú er ég ekki mjög gömul, á miðjum þrítugsaldri og man því vel eftir því þegar ég var unglingur og fullorðna fólkið var að...