Sæl(l) ramax! Ég gef lítið fyrir svona póstmódernískt blaður. Leit okkar að sannleikanum, sé hann til sem eitt og afmarkað fyrirbæri, hlýtur að hluta til að felast í því að setjast niður og segja (að lokinni rannsókn) “svona er heimurinn”. Því betur sem við könnum þennan heim okkar, sjálfsvitundina og allt sem er, því nær komumst við vitneskjunni um HVAÐ þetta allt saman er. Að kalla slíkt kreddu nær varla nokkurri átt. Kredda felst í því að skilgreina heiminn ÁN undangenginnar rannsóknar....