Hafið þið ekki orðið vör við það að þið þurfið allt í einu að hringja í einhver ykkur nákominn og það er á tali? Hvað kemur svo í ljós viðkomandi aðili var einmitt að hringja í ykkur. Ég finn oft á mér hvort fólkinu mínu líður illa eða vel. Eins er þegar vissir einstaklingar hyggja á heimsóknir, stundum sifjar manni þessi óskup, þegar aðrir koma er allt ný tekið í gegn. Það er talað um að þetta séu fylgjur fólks að láta vita af heimsókn.
Ég minnist þess t.d. að þegar ég var í foreldrahúsum, þá var alltaf bankað á dyrnar nokkru áður en fólk af einum bænum kom í heimsókn. Bróðir minn fór svo að vinna hjá fólkinu og viti menn, bankið fylgdi honum meðan hann vann hjá þeim.