Englendingar eiga 5 heimsklassa leikmenn, Rio Ferdinand, Sol Campell, Steven Gerrard, Paul Scholes og David Beckham. Þarna eru tveir varnarmenn, raunar tveir miðverðir. Aukinheldur eru Ashley Cole og Gary Neville í það háum klassa að með Sol og Rio í miðverðinum ættu þeir að geta leikið traustan varnarleik sem vinstri og hægri bakverðir. Nú er Rio úti en Terry eða Woodgate ættu að geta skilað sínu. Annars er enska landsliðið ekkert með svo sterka leikmenn innanborðs fyrir utan þessa fimm sem...