Mitt fyrsta fyllerí var á aðfangadagskvöld 1999, þá var ég 16 ára skiptinemi í Venezuela. Fósturmamma mín þarna úti gaf mér romm og kók sem ég drakk allt kvöldið. Svo var mér boðið í partý og þar hélt ég áfram að drekka. Ég varð bara mjög skemmtilega drukkin. Vildi fara strax aftur á annað fyllerí sem ég gerði þrem dögum seinna. Það endaði frekar illa þar sem ég drakk stóra Bacardí flösku alveg ein auk nokkurra bjóra, vínglasa og örlítið af viskíi. Gat varla staðið og þurfti hjálp við að...